Síðustu tvö kvöld erum við Binni búin að vera að horfa á íslenskar bíómyndir. Horfðum á myndina Astrópía sem okkur fannst mjög skemmtileg. Ég fór að spá: Ætli það séu virkilega til svona nördar? Og í gærkvöldi horfðum við á Mýrina. Okkur fannst hún nokkuð góð en ekkert brilliant! Frekar þung og aðalpersónan einum of húmorslaus. Og mér finnst það orðið frekar þreytandi við íslenskar myndir að það er alltaf kórsöngur í myndunum!! Ég hef ekkert á móti kórsöng, finnst hann venjulega mjög fallegur en það er til fullt af góðu tónlistarfólki á Ísl. Af hverju ekki að breyta til? Maður gerir ekki annað en að hækka og lækka í sjónvarpinu, kórinn yfirgnæfir allt og því þarf að lækka svo maður ærist ekki og hækka svo aftur til að heyra talið! En hvað um það!!
Það er búið að vera þvílíkt letilíf á mínum bæ. Ég er komin í vítahring , sef alltof lengi og er svo andvaka á kvöldin og þar af leiðandi þreytt næsta morgun og sef frameftir... Við höfum ekki farið út úr húsi í allan dag, ég rétt skrapp útí búð! En það er svo sem ágætt að fá einn og einn svona dag, sérstaklega ef maður nær að fæla frá sér samviskubitið um að halda strákunum svona inni! En þeir kvarta ekkert. Við fórum með þá útí búð í gær... þeim finnst það BARA leiðinlegt. Ef við erum að fara eitthvert þá erum við varla komin útúr innkeyrslunni þegar J.I. spyr: erum við ekki að vera komin? Svo förum við í búð þá kemur: Æ ekki þessa búð! Og ef við slysumst til að keyra framhjá sömu búð aftur kemur: Æ nei, ekki aftur í þessa búð! Og svo: Erum við ekki að verða búin? Hvenær förum við heim?? o.s.frv. En þeir græddu vel í gær, fengu sitthvorn tölvuleikinn .
Á föstudaginn fórum við á jólaball hjá Ísl.félaginum. Það var mjög gaman, allir komu með eitthvað meðlæti með sér á hlaðborðið. Svo var dansað í kringum jólatré og svo komu tveir jólasveinar... og það er saga til að segja frá.... Brynjar tók að sér að vera jólasveinn. Fór í búning og fékk skegg og kinnalit. Ásbjörn var nú fljótur að fatta plottið! Sagði öllum sem "ekki" vildu heyra að þetta væri ekki jólasveinn, heldur pabbi hans! Jóhann Ingi hafði þetta upp eftir honum en var samt alveg á báðum áttum. Það var frekar fyndið að fylgjast með honum, hann var svo stjarfur og spenntur en samt svo hugsi og fylgdist vel með pabba sínum en ég reyndi samt að halda honum hjá hinum jólasveininum, honum Kertasníki og hann hefur ekkert meira talað um þetta. En sá eldri heldur því statt og stöðugt fram að þetta var ekki jólasveinn og frekar ómögulegt að snúa útúr fyrir honum og þagga niður í honum . Já þessi börn eru ekki eins vitlaus og þau líta út fyrir að vera... ho..ho...ho....
Í gærkvöldi var okkur boðið í mat til Dagmar og Einars. Fengum íslenskt lambalæri... mmmm... klikkar aldrei .
Og svo var ég áðan að úrbeina læri í pottrétt sem verður í áramótamatinn. Við ætluðum reyndar að hafa kalkún en hann bara fæst ekki! Hvorki hér né í Þýskalandi . En pottrétturinn er bestur í heimi og reddar því málunum .
Steinar bróðir minn á afmæli í dag... til hamingju brósi .
Að lokum vil ég óska öllum gleðilegs árs... takk fyrir það sem er að líða..
Nú er sko komin pása á kjötáti!!! Næstu daga verða súpa og brauð og kannski fiskur í matinn. Ásbjörn ætti sérstaklega að vera glaður með það, hann þolir ekki kjöt!! Greyið pýndi í sig jólasteikinni án þess að mótmæla og var orðinn grár í framan af flökurleika . En hann fékk steiktan fisk á jóladag meðan við hin borðuðum hangikjöt.
Við erum búin að hafa það rosalega fínt síðustu daga. Á aðfangadag var okkur boðið í heitt súkkulaði og smákökur til nágranna okkar Sighvats og Eddu. Um kvöldið var nóg að gera hjá strákunum við pakkaupptekningar -fúff... þvílíkt flóð. Ásbjörn ætlaði að lesa á pakkana en hann var svo ákafur að hann hafði bara tíma til að lesa: Til Ásbjörns eða: Til Jóhanns Inga en ekki frá hverjum, þannig að hann fékk smá aðstoð . Síðan hef ég verið að spila við Ásbjörn.... það er bara ekki hægt að vinna barnið, hann alveg rústaði mér skipti eftir skipti, þó ég hafi lagt mig alla fram við að vinna hann. Við vorum að spila UNO. Svo eru hann og Binni búnir að byggja úr Lego. Ásbjörn fékk risa kassa af tæknilego í jólagjöf frá okkur og þeir eru búnir að byggjar heljarinnar krana og vinnuvélar.
Á jóladag var okkur boðið í kaffi til Svans og Elsu og svo komu þau í kvöldmat til okkar, og í dag var okkur boðið í kaffi til Möggu Lukku og Jóa. Og svo komu Árný, Stebbi og Monika Rós í mat til okkar í kvöld. Þannig að okkur hefur sko ekki leiðst . Árný og Stebbi tóku Trival spil með sér og fórum við því í smá hugarleikfimi eftir matinn . Og hver haldið þið nú að hafi unnið???? Ikke jeg! Heldur einn náungi sem er uppfullur af nitlausum fróðleik!!! Ég er ekkert tapsár .... þó ég hafi skíttapað í orðsins fyllstu merkingu. Ég gat svarað einni spurningu rétt og giskaði síðan á eina sem var rétt . Síðan verður maður nú alltaf að spila sig pínu fróða!! Uuuu... ég á að vita þetta..... ég veit þetta alveg en bara man ekki nafnið... svo kemur svarið... já auðvitað, einmitt sem mig langaði að segja . Æ já!! Það er alltaf gaman að fá að vera með!!! hehe...
Framundan hjá mér er að fá Trival spilið lánað og læra spurningarnar utanað.
Og framundan hjá okkur er jólamessa og jólaball á föstudaginn. Kaupa rakettur og undirbúa áramótin. Og já... ekki má gleyma að senda jólakortin .
Er að vinna í að setja inn nýjar myndir frá desember. Kannski hefst það hjá mér í kvöld... kannski ekki!
Nú styttist óðum í stóra daginn og allt að verða klárt. Sherryfrómasinn tilbúinn, sterkur og fínn , steikin til í slaginn og næstum búin að þrífa, bara eitt herbergi eftir. Strákarnir tóku að sér að skreyta jólatréð í morgun. Ásbjörn kallaði síðan í mig og spurði hvort þeir mættu nokkuð taka sér smá pásu!!! Það mætti halda að ég hafi verið að píska þeim út . Síðan fór ég í skötuveislu hjá ísl.félaginu. Var að hjálpa til í eldhúsinu og smakkaði síðan smá saltfisk. Og viti menn... hann var bara mjög góður með kartöflu og smjöri. Ég hef ekki smakkað saltfisk síðan ég var krakki! Þegar heim var komið, var ég vinsamlegast beðin um að skipta um föt og setja þau beint inní þvottavélina, ég fann enga lykt! En potturinn minn angar enn . Tefal pottur sem ég er búin að sápuþvo (ég veit það má ekki), síðan prófaði ég að sjóða matarsóta í honum (er hann ekki húsráð við öllu?) og síðan sápuþvoði ég hann aftur og það er ennþá fýla í honum . Strákarnir eru búnir að vera þvílíkir englar í dag . Án gríns þá hefur hvorki ég né Binni sé þá svona góða saman í HEILANN DAG og ekkert rifist né þrasað, bara leikið og hlegið!!! Það hlýtur að hafa verið einhvað töfraloft í prumpublöðrunni sem þeir fengu frá jólasveininum síðustu nótt??
Í gær lögðum við familían land undir fót. Við tókum okkur rúnt til Esbjerg og heimsóttum Jónu Björk og fjölskyldu. Okkur fannst það litla sem við sáum af bænum bara mjög fínt og snyrtilegt. Það var líka mjög fínt að koma til Jónu og co. Við vissum ekki af strákunum allan tímann, (þetta var orðið hálf óþægileg tilfinning á tímabili), en þeir náðu allir bara svona voða vel saman þessar elskur. Það voru engar smá móttökur, hnallþórur og alles og svo var okkur boðið í mat líka. Strákarnir spurðu strax á leiðinni útí bíl hvenær við færum aftur að heimsækja þau . Takk kærlega fyrir okkur Jóna og Haffi.
Já svo má ég nú ekki gleyma einu!! Ásbjörn sagði fyrstu setninguna sína á dönsku í gær. Ég held hann hafi bara alveg óvart misst þetta útúr sér, örugglega verið lengi með þetta í hausnum en hann sagði: Hold da kjæft!!! Hahaha.... Við Binni litum bæði á hann og spurðum hvað hann hafi sagt og hann sagði: ekkert! Og ég sagði við hann að hann hafi verið að tala dönsku en hann neitaði því í fyrstu... því hann fattaði það ekki fyrr en eftir á .
Annars er það að frétta af strákunum að Ásbjörn er mjög duglegur að æfa sig að lesa, búinn með eina lesbók úr skólanum og kominn með aðra og hann ætlar að taka að sér að lesa á jólapakkana á morgun. Jóhann Ingi var veikur alla síðustu viku. Eitt tók við af öðru! Ælupest, hiti og astmakast. En hann er orðinn eldhress og syngur: Já ég elska Jóhann, árans kjóann, jafnvel þó hann sé eins og hann er. Og svo syngur hann líka: Borðar þú orma fðoðma (frú Norma). Brjálað stuð á bænum .
Að lokum við ég óska öllum gleðilegra jóla. Vonandi hafið þið það rosalega gott yfir hátíðarnar .
Það er eiginlega orðið óhugnanlega stutt í jólin!!! Bara einn skóladagur eftir hjá mér... llaanngur dagur. Ég er búin að vera óska fólki gleðilegra jóla undanfarna daga en svo allt í einu fannst mér svo skrítið að það væru að koma jól!!! Allt í einu fannst mér ekkert jólalegt! Það er enginn snjór, en samt mjög fallegt veður. Það er mjög lítið um jólaskreytingar, maður fær hálfgert sjokk ef maður sér ofur skreyttan garð og ég veit ekki af hverju þetta kom yfir mig. Kannski er ég bara eitthvað illa upplögð í dag! Svaf illa og brjálað að gera í skólanum.
En nýjar fréttir af skólanum! Það er búið að selja hann og nýr eigandi tekur við um áramót. Ég efast samt um að mitt nám breytist eitthvað, vegna þess að það er svo stutt eftir. En annars verða örugglega einhverjar breytingar fyrir nýja nemendur, þ.e.a.s. ef það koma þá einhverjir nýjir. Það er enginn búinn að skrá sig í námið sem byrjar í janúar.
Síðasta helgi var mjög skemmtileg. Ásbjörn fór í tvö afmæli. Óli vinur hans gisti hjá honum og Ásbjörn gisti hjá Óla. Jóhann Ingi gisti hjá Hörpu Ósk. Við völdum okkur jólatré og söguðum það niður. Fengum heitt kakó og pebbernödder í boði Ísl. félagsins og keyptum okkur Ísl. nammi . Við Binni fórum á Julefrokost með stjórn Ísl. félagsins. Það var æðislega gaman. Vorum í heimahúsi og allir komu með eitthvað á hlaðborðið. Svo var borðað, drukkið og spjallað og voða kósý.
Sunnudagurinn var ekki eins skemmtilegur . Ég var FREKAR þreytt ALLAN daginn og átti að fara í próf daginn eftir og átti eftir að lesa SVO mikið. Þar sem heilasellurnar voru ekki alveg uppá sitt besta þennan daginn þá varð lítið um lestur . En ég náði alveg prófinu, hefði alveg viljað fá hærra en.... så er det bare!!
Nú er Jóhann Ingi veikur. Ældi allt út í nótt og er núna með hita . En hann er samt þokkalega hress. Ásbjörn fór í jólaklippingu eftir skóla í dag, algjör töffari. Bað Jónu um að greiða á sig brodda .
Ég á bara eina jólagjöf eftir... fyrir Ásbjörn. Og ég bara VEIT EKKI hvað við getum gefið barninu??? Ég ætla að nota fimmtudag og föstudag til að þræða búðirnar fram og til baka og finna eitthvað flott fyrir hann .
Og ég sem ætlaði að byrja jólin svo snemma... kaupa allar jólagjafir löngu fyrir jól og skrifa jólakort og senda þau á skikkanlegum tíma . Veit ekki hvað klikkaði hjá mér!! En þið þurfið allavega ekki að láta ykkur bregða ef þið fáið kortin nokkrum dögum eftir jól , en vonandi ná þau þó á réttum tíma.
Ég held það sé löngu kominn tími til að taka könnunina út!! Og viti menn... nautið er svo þrjóskt að það þykist ekkert taka mark á áliti almennings!!! Þannig að við geymum klósettrúlluna bara áfram uppá þvottavélinni... þá skiptir ekki máli hvernig hún snýr!!!!
Það var alveg yndislegt að fá mömmu og pabba í heimsókn. Verst hvað tíminn var fljótur að líða. Það var mikið skoðað í búðir og verslað , ég kláraði m.a. allar jólagjafir sem fóru til Íslands... fjúfff... Við fórum til Kolding í risa verslunarmiðstöð þar og svo fórum við líka til Flensborg og svo auðvitað hér í miðbæinn líka. Mamma og pabbi buðu okkur út að borða á laugardaginn á Mongolian Restaurant... klikkar aldrei . Við fórum saman með Írisi og Sigga og Svan og Elsu og börnum, það var rosalega gaman . Á sunnudaginn fórum við öll saman til Óðinsvé í dýragarðinn. Veðrið var mjög fínt og dýragarðurinn mjög skemmtilegur. Ég væri alveg til í að fara þangað aftur næsta sumar... í sól og sumaryl! Síðan koma að kveðjustund ... ég fór samt ekki að grenja!!! Haha... en þurfti samt að berjast við tárin .. alltaf erfitt að kveðja. Þau héldu síðan áleiðis til Köben en við og Svanur og Elsa fórum á Mc´donalds og svo var brunað heim á leið... eftir frábæran dag . Dæs... það var svo gaman að fá þau öll í heimsókn.
Já... síðan flytjum við 15 febrúar . Erum búin að borga staðfestinguna þannig að nú er ekki aftur snúið... enda ekki ætlunin.
Ég fór í próf í gær og gekk bara mjög vel . Elsa reddaði mér alveg, kom og var módel fyrir mig. En ég fékk samt ekki að meðhöndla hana, kennarinn raðaði niður módelum á okkur. Síðan fer ég í skriflegt próf á næsta mánudag og drullu kvíður fyrir því... ætti kannski bara að vera að lesa núna??
Í skólanum fáum við allskonar fólk í meðhöndlun og það er oft svo ótrúlegt hvað kemur uppúr fólki!!! Ég ákvað að deila einum kúnna með ykkur!!! Ég varð nefnilega alveg kjaftstopp í morgun. Ég var með eina sem var með 10 mánaða barn með sér, sem var enn á brjósti. Ég spurði konuna hvernig hún meðhöndlaði húðina á sér dags daglega. Hún sagðist ekkert gera... notar engin hreinsiefni né krem og ekki neitt, ekki einu sinni ilmvatn. Því hún sagði að öll efni sem konur með barn á brjósti setja á húðina á sér fari í mjólkina!!!! Ég hef heyrt alls konar vitleysu um ævina.. en þetta!!!! Ó my god!!! Ég sat nú alveg á mér og sagðist aldrei hafa heyrt þetta og sagði að það væri hægt að nota mild rakagefandi krem... en nei, nei... hún var alveg föst á þessu og hélt áfram að telja upp hvað mætti ekki koma við húðina og hvað mætti ekki borða!!! Og taldi síðan upp sjúkdóma sem börnin geta fengið ef það eru notuð krem og ilmefni og þess háttar . Ég var bara alveg kjaftstopp. Svo er nefnilega ein "bekkjarsystir" mín ólétt, og hún getur ekki tekið hina og þessa meðhöndlun... því hún er ólétt!!! En já svona er þetta nú bara... Ekki það að ég hafi vit á þessu með brjóstabörn og krem og þess háttar, en það eru víst til endalausar klisjur um hitt og þetta og allt og ekkert .
Nú er Jóhann Ingi í heimsókn hjá Nicolas vini sínum og bráðum tími til að sækja hann, honum var boðið í mat og alles, voða gaman. Og Ásbjörn er með Óla vin sinn í heimsókn.
Jæja þá eru mamma og pabbi komin. Það er alveg yndislegt að hafa þau hérna en bara verst hvað þau stoppa stutt . Þau dingluðu bjöllunni þegar þau komu og strákarnir fóru til dyra, Ásbjörn á undan. Hann var alveg kjaftstopp og var þvílíkt hissa, átti allra síst von á að hitta þau. Jóhann Ingi hékk í dyragættinni í eldhúsinu og marg endurtók: amma og afi eru komin til okkar. Svo voru þvílík fagnaðarlæti allt kvöldið . Strákarnir vissu heldur ekki að Íris og Siggi, Arnar Daði og Gylfi væru hjá Svan og Elsu en eitthvað barst það í tal að það væru fleiri óvæntar uppákomur og Ásbjörn alveg að farast úr forvitni og ákvað að díla við okkur. Bað mig um að skrifa nöfnin á þessu óvænta fólki niður og ef hann gæti lesið þau alveg sjálfur þá fengi hann að vita þetta, og minns bara las nöfnin upp . Þannig að það er búin að vera mikil gleði hér á bæ .
Ásbjörn er búinn að vera að æfa sig að lesa undanfarið og það gengur mjög vel, en hann ruglar aðeins stöfunum því hann lærir þá á dönsku í skólanum og margir þeirra eru bornir öðruvísi fram. Það eru aðallega stafir með kommu yfir sem hann ruglast á. En við verðum bara að vera dugleg að æfa.
Í dag fóru ég, mamma og pabbi til Kolding. Ég sýndi þeim skólann minn og svo fórum við í Store Center sem er verslunarmiðstöð með u.þ.b. 120 verslunum. Við vorum þarna í 5-6 klst. og ég held við höfum komið við í flestum búðunum. Mamma og pabbi náðu að kaupa nokkrar jólagjafir en ég enga. Á morgun förum við líklega til Þýskaland, kíkjum aðeins á göngugötuna og tökum strákana með okkur. Stefnum bara á rólegheit , ætlum ekkert að missa okkur í búðum eins og í dag!
Svo fengum við bréf í póstkassann í dag!! Það er nú svo sem ekkert nýtt... enda póstkassi ætlaður fyrir bréf! En þetta tiltekna bréf var tilboð um stærri íbúð með GARÐI og fjögurra herbergja . Þessi íbúð er í þarnæstu blokk við okkur og við gætum flutt inn 15 febrúar. Við verðum að svara í síðasta lagi á þriðjudaginn og ætlum að fá að skoða hana á morgun eða um helgina. Núna sé ég næsta sumar alveg í hyllingum, sitjandi útí garði í góða veðrinu (þ.e.a.s. ef það rignir ekki svona mikið eins og síðasta sumar ) og svo er ég búin að lofa strákunum trampólíni ef við fáum garð!! Og svo fá strákarnir sitthvort herbergið. Uummm... yndislegt .
Það styttist óðum í mömmu og pabba, ekki á morgun heldur hinn . Við erum ekkert búin að segja strákunum og stundum gleymi ég mér og þegar orðin: þegar amma og afi koma! eru alveg að vera komin útúr mér þá ranka ég við mér! Ég verð bara að halda í mér í 2 daga í viðbót.
Á föstudaginn fórum við útí bæ til að sjá þegar kveikt var á jólatrénu. Strákarnir voru mjög spenntir og sérstaklega Ásbjörn eða alveg þangað til hann fattaði að það átti að kveikja Á jólatrénu en ekki Í því . En hann skemmti sér mjög vel þó það hafi ekki verið jólabrenna! Við sáum jólasveininn og álfana draga vagninn hans og löbbuðum með vagninum niður miðbæinn.
Um kvöldið fórum við Binni á "kojufyllerí" , haha... drukkum hvítvín og sátum við tölvuna að skoða hvað við ættum af tónlist í henni. Við erum svo agalega glötuð... erum venjulega sofnuð fyrir miðnætti um helgar en í þetta skiptið gleymdum við okkur til rúmlega eitt!!!
Í gær fóru ég og Jóhann Ingi útí bæ. Keyptum m.a. þrjár jólagjafir. Síðan var strákunum boðið í heimsókn til Hrafns Jökuls og ég fór að þrífa.
Í dag var aðventukaffi hjá íslendingafélaginu. Fullt borð af girnilegum kökum, heitt kakó og kaffi. Mjög gaman eins og alltaf á viðburðum félagsins .
Ég fékk góða skýringu á þessum kvennabílastæðum um daginn og trúi því að sú skýring sé réttust! Þessi stæði eru fyrir konur og eru næst inngöngunum öryggisins vegna. Það eru allskonar ógeð eða geðsjúklingar sem geta hangið inní bílastæðastæðahúsum og bíða eftir að finna þar konu eina á labbinu og ráðast á hana. Og þau eru víst ekkert breiðari en önnur stæði!!! Þannig að nú er ég hætt að vera móðguð .
En það styttist óðum í mömmu og pabba , bara tveir skóladagar eftir og svo eru þau komin. Það er ömmu og afa dagur í skólanum hjá Ásbirni í dag og hjá Jóhanni Inga í þarnæstu viku. Ásbjörn er reyndar heima í dag og var líka heima í gær, hann er með svo rosalega ljótan hósta að við ákváðum að halda honum heima.
Í gærmorgun kom Magga Lukka til mín og við bökuðum FULLT af smákökum, Elsa "kíkti" líka í kaffi en endaði í stórbakstri . Við gerðum 2 sortir en önnur þeirra tók alveg endalausan tíma. Við urðum að nota handsnúnu hakkavélina og gerðum úr henni 200 kökur!! Við tókum pásu um miðjan daginn og hittumst svo aftur um kvöldið til að getað klárað.
Á síðasta sunnudag hittumst við nokkrar vinkonur og borðuðum pizzu og horfðum á video, þetta var mjög fínt kvöld. En við vorum svo "sniðugar" að við tókum hryllingsmynd eftir Stephen King. Ég horfi aldrei á hryllingsmyndir, mig langar oft til þess en... þori því bara ekki. Ég fæ alltaf martröð nokkrar nætur á eftir og verð ímyndunarveik og heyri hljóð alls staðar . Þori ekki að láta löppina hanga út úr rúminu því kannski er skrímsli þar undir sem bítur löppina af og þori ekki að opna fataskápinn því þá spýtist kannski blóð út úr honum.... nei ég er nú ekki alveg svona kreisí en þetta fyrsta er samt rétt! Ég held að myndin heitir Destination og hún byrjaði strax að vera ljót og ég náttúrulega varð uppsperrt og lifði mig þvílíkt inní þetta og lokaði augunum þegar ég vildi ekki sjá! En svo var myndin orðið svo mikið rugl í endirinn og þá gat ég slakað á. Og ég fékk enga martröð .
Ég tók mér frí í skólanum á síðasta þriðjudag til að fara í foreldrakaffi hjá Jóhanni Inga. Ég notaði líka tímann til að gera eitthvað hérna heima og tókst að gera hluti sem ég er búin að treina lengi. Afhrímdi frystirinn, bakaði lagtertu, þurrkaði af, keypti smá jólaskraut og gerði aðventukrans. Ég ætlaði að kaupa mér efni í jólagardínur en fann ekkert, ekki einu sinni í Rúmfatalagernum. Ég fann reyndar eina tilbúna gardínu þar en guð hvað hún var ljót. Hún var eins og U á hvolfi!!! Ég ætla að kíkja í aðra efnabúð í dag og ath. hvað ég finn þar.
Síðan á að kveikja á jólarténu útí bæ í dag. Ég býst við að kíkja þangað með strákana.
Binni sést voða lítið heima þessa dagana, hann er "fluttur" uppí skóla. Prófkvíðinn er eitthvað að læðast yfir hann. Mér finnst þetta frekar fáránlegt, en hann fer í próf í janúar! Í stað þess að geta klárað þetta fyrir jól og geta svo notið jólanna án þess að vera með samviskubit yfir að vera ekki að læra! En svona er þetta víst bara.
Veðrið er ekki búið að vera neitt sérstakt hérna. Núna er blautt úti, rigningadagur og kuldalegt. Svo hafa komið dagar sem þurft hefur að skafa bílrúðurnar. Binni keypti samt snilldar sprey í Þýskalandi. Hann spreyjar yfir klakann á rúðunum og hann hverfur!! Ekkert skaferí , en ég hef samt ekki ennþá prófað það. Ég kíkti yfir moggann áðan. Stormur á Íslandi og björgunarsveitir kallaðar út hér og þar um landið , svo er ég að kvarta!!!
Við fjölskyldan skelltum okkur til Þýskalands í gær. Þar fórum við m.a. í 2 moll og í þeim báðum voru sérmerkt bílastæði fyrir konur, þar stóð orðrétt: Frauen parkplätze!!! Munurinn á þeim og öðrum bílastæðum var að þau voru breiðari . Ég verð nú að viðurkenna að ég varð hálf móðguð! Ég hef verið með bílpróf í næstum 12 ár og jú... það hefur komið fyrir að sum bílastæði hafi böggað mig en þá hef ég bara fundið annað og betra stæði eða bara látið mig hafa það og troðið mér inní stæðið. Og ég er viss um að "venjuleg" bílastæði hafi líka oft böggað karlmenn en þeir þegja bara og blóta í hljóði til að halda "stoltinu". Svo fór ég að spá hvort femínistar hafi fundið uppá þessu? Ég heyrði einhverntímann að femínistar á Íslandi vildu fá konumyndir á gönguljósin!!!! Ó my god... nú fer ég að verða pirruð... ég er anti-femínisti.. ekki meiri femínistapælingar. Kannski er bara ástæðan að þýskar konur kunna ekki að leggja í stæði . Og hana nú.
Þetta voru bara smá pælingar, ég svaf sko alveg í nótt útaf þessu .
Við keyptum okkur m.a. jólagjöf í Þýskalandi. Við keyptum leiðsögutæki sem nefnist Garmin nüvi 250w. Binni er búinn að gráta sig í svefn á hverju kvöldi síðan fyrsti vinur hans fékk sér svona en nú lét hann verða af því að eignast svona. Auðvitað er þetta snilldartæki, vorum með svona á leiðinni til Póllands og höfum áður fengið svona lánað þegar við förum á nýja staði. Og svo er annar kostur við tækið! Nú getur Binni rövlað og tautað í tækinu en ekki mér . Það er ótrúlegt hvað hann getur kjaftað við þetta blessaða tæki ég var/er farin að halda að hann þurfi einhverja andlega hjálp . En honum ætti allavega ekki að leiðast ef hann fer einn að ferðast!! Haha... ég þyrfi eiginlega að setja upp falda myndavél í bílinn og sýna honum það svo.
Ég keypti líka aðeins meira af jóladóti en vantar samt helling til að geta gert heimilið jólalegt, en það kemur.
Ásbjörn fór í enn eitt afmælið í gær! Það er brjálað að gera í afmælum hjá þessari elsku, en auðvitað finnst honum það bara gaman. Afmælið í gær var í keilusalnum og svo fer hann í annað afmæli næsta sunnudag.
Bekkjarbróðir hans kom með honum heim úr skólanum á föstudaginn. Ásbjörn talaði ekkert við hann en þeir gátu samt leikið sér og Jóhann Ingi lék með þeim, en hann er ófeiminn við að tala. Mamma stráksins sagðist vilja bjóða Ásbirni í heimsókn til þeirra seinna. Strákarnir ná mjög vel saman, og vilja báðir hittast aftur utan skóla. Ég vona að þetta nái að örva Ásbjörn í að tala. En annars sagði hann í gær að hann ætli að tala í skólanum á morgun, en það verður bara að koma í ljós. Við erum að reyna að vera ekki að ýta á eftir honum. Berglind frænka sendi mér link á eina síðu sem er um eitthvað sem heitir Kjörþögn á íslensku: http://www.selectivemutismfoundation.org/about.shtml (ég kann ekki að stytta þetta). En allavega á þetta rosalega vel við Ásbjörn og við erum búin að benda kennaranum á þetta og einn fóstrinn er búinn að finna danska síðu um þetta. Þessi síða gefur mjög góðar upplýsingar um hvað við eigum að gera og hvað við eigum ekki að gera.
Í kvöld er ég að fara að hitta nokkrar stelpur. Við ætlum að horfa á video og borða pizzu og hafa það kósý . Maður verður að kunna að "hygge sig" í Danmörku .
Eða annan svalandi, seiðandi og sykraðan gosdrykk??
Lestu þá fyrst eftirfarandi:
Í einum lítra af gosi (sem er ekki diet) eru 52 sykurmolar. Hver sykurmoli vegur u.þ.b. 2 gr. Ef maður drekkur 1 líter á dag þá gerir það 364 sykurmola á viku eða 726 gr.
Einn líter á dag í heilt ár eru 38 kg. af sykri !!!!!!
Mikið er ég fegin að drekka ekki mikið af gosi, þetta er algjör vibbi . Ég drekk 0-1 líter af appelsíni á viku. Ég held ég hugsi mig samt vel um áður en ég opna næstu dós. Ég drakk rosalega mikið af sódavatni en er hætt að kaupa það núna og er rosalega dugleg að drekka kranavatn. Hef verið að drekka 1,5 - 2 lítra á dag. Enginn sykur og engin aukaefni, það er meira að segja kalksíað og það skemmtilegasta við vatnsdrykkjuna er þegar maður vaknar um miðja nótt alveg að míga á sig . Þurfa að rífa sig undan heitri sænginni og stíga inná ískalt baðherbergisgólfið.
Ég "ætlaði" að vera rosalega dugleg í morgun!! Við Jóna fórum í nýja líkamsræktarsalinn og ætluðum að kaupa okkur mánaðarkort. En þar kom svo í ljós að við þurftum að gefa upp reikningnúmerin okkar því greiðslurnar þurfa að fara í gegnum greiðsluþjónustu . En við vorum ekki með reikningsnúmerin okkar svo við röltum okkur bara niðrí bæ og fórum á kaffihús. Fengum okkur kaffi og brunch, voða huggó.
Binni er að vesenast með bílinn núna. Hann komst í gegnum skoðun og kannski fáum við númeraplötur í dag . Best að gera sér samt ekkert of miklar vonir.