Sunnudagur!!!

20. nóvember 2007 klukkan 20:53

Ég ætlaði að vera SVO dugleg áðan og drífa mig í körfubolta EN svo komst ég bara ekki Óákveðinn. Binni er ekki heima og það voru svo margar búnar að afboða komu sína þannig að það hefði ekki verið karfa hvort sem er. Í þessi þrjú skipti sem ég hef sko ætlað að demba mér af stað í körfu, þá hefur henni verið aflýst!! Ég ætti kannski að fara að taka þessu persónulega. Kannski er ég ekkert svona hrikalega skemmtileg eins og ég held ég sé Ullandi (haha..). Kannski finnst fólki ekkert gaman að heyra hetjusögur af mér í hvert skipti sem það hittir mig og kannski fílar fólk ekkert fimmaurabrandarana og...og..og....

                                Hlæjandi                 Glottandi                Hlæjandi

Ég er búin að komast að því og viðurkenna að spegillinn sem ég keypti mér síðasta vor... er bara blöff!!!
Ég lít í hann öðru hvoru og hugsa: Ok ég er ekkert svo hrikalega feit en svo kem ég í skólann og þar eru fullt af speglun OG þar er ég feit Óákveðinn.
Ég hefði átt að láta spegilinn inná baðherbergi duga mér, því þar sé ég bara hausinn á mér og get því ekki verið að svekkja sjálfa mig yfir restinni af líkamanum.

Ég setti mér markmið í dag! Ég vona að ég standi við það og ef svo er þá skrifa ég um það seinna. Leyndarmál, ekki segja frá... því sem enginn veeit.

Ég fór á Bubbatónleikana síðasta laugardag, það var rosalega gaman. Og hrikalega er Bubbi góður í dönsku. Brandararnir hans voru alveg jafn fyndnir á dönsku og íslensku og hann gerði óspart grín að dönum.. frekar fyndið Brosandi. En síðan var eitthvað blindfullt pakk þarna sem kom með heilan kassa af bjór með sér og var veltandi flöskunum til, með tilheyrandi látum og svo voru þau endalaust gjammandi eitthvað og voru bara dónaleg. Það var það eina sem skyggði á.

Bílamálin hjá okkur eru ennþá í vinnslu... bíllinn fékk endurskoðun Óákveðinn. Binni er búinn að vera að gera við bílinn í dag og vonum við að það dugi. Hann fer aftur í skoðun á fimmtudaginn.

Nú er stutt skólavika hjá mér, bara morgundagurinn eftir. En ég ætla að reyna að byrja að skrifa ritgerð um helgina. Ef einhver lumar á góðri ritgerð um Bláa lónið þá Glottandi... óskast hún hér með til láns Glottandi. Haha... bara að grínast!!! Ég þarf bara að skrifa 12-18 bls. Gráta og ég mikla það rosalega fyrir mér. En ætli það sé ekki bara spurning um að byrja að skrifa og þá kemst maður í gang.

Jæja, best að kíkja á imbann. Það er skársta sjónvarpsdagskráin á virkum dögum!! Síðasta föstudagskvöld var ég að horfa á Evrópu eða heimsmeistaramót í Dómínó Á þýsku. Mjög spennandi keppni. Þetta var ótrúlega flott og ó my god hvað þetta blessaða fólk hlýtur að hafa góða þolinmæði, að raða milljón kubbum upp eftir einhverri mynd og láta svo allt saman hrynja!!! Og það hlýtur nú stundum að gerast að þegar fólk er að leggja síðustu kubbana niður og verkið alveg að klárast þá rekur það sig AÐEINS í og ALLT dómínóið hrynur og þeir þurfa að byrja uppá nýtt Öskrandi.

Ó já gott fólk, mér leiðist sko ALDREI Hlæjandi.

Knús og kremjur....... þar til næst...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Alltaf á síðustu stundu!!!

16. nóvember 2007 klukkan 13:45
Sendi mail í vikunni um hvort ég fengi miða á Bubbatónleikana, en miðasalan hætti fyrir löngu. En lucky me... ég fékk miða Hlæjandi. Fer þá sem sagt til Flensborg á morgun, svo er líka myndlistasýning með Tolla, ég er nú ekki mikill listaunnandi!!! En það verður örugglega gaman að kíkja á það líka.

Við Binni erum búin að vera í viðtölum við kennarann hans Ásbjörns. Það er verið að vinna í því að fá barnasálfræðing eða einhver sérfræðing til að hjálpa okkur að vinna í því að fá barnið til að tala. Ef þetta heldur mikið lengur svona áfram þá erum við svo hrædd um að hann fari að einangrast.

Kennarinn kom okkur rosalega á óvart. Við vorum búin að dæma hana heldur harkalega en svona er þetta bara svo oft. Maður dæmir alltaf fyrirfram og er síðan alltaf jafn hissa þegar maður kynnist viðkomandi.

Ég veit ekki alveg hvernig ég á lýsa því hvernig mér fannst hún fyrst; frekar fruntuleg (ef það er lýsingarorð?), talar hratt og mikið og lætur allt gossa og er eitur hress (en ég var búin að ákveða að það væri bara á yfirborðinu og undir niðri væri hún algjör gribba).

En núna er lýsingin á henni svona; Eitur hress, talar hratt og mikið, er ákveðin en sanngjörn, og hún talar hreint og beint út sem er auðvitað bara mjög gott.

En allavega ætlar kennarinn að drífa þessa pappírsvinnu af og vonumst við öll eftir einhverri niðurstöðu von bráðar.

Ásbjörn fékk rosalega gott umtal frá kennaranum. Hún sagði að hann væri mjög klár og að mörgu leiti fram yfir samnemendur sína í getu (verkefnum og hugsun). Henni finnst ótrúlegur þessi "sjálfsagi" hjá honum að tala ekki en geta samt tjáð sig og sýnt tilfinningar.
Hún lét hann hætta í dönskustuðningum fyrir nokkrum vikum síðan (en ég frétti það í dag!), því hún vildi frekar hafa hann hjá sér og sagðist halda mikið uppá hann.

Ég spurði Ásbjörn út í kennarann um daginn, vildi forvitnast um hvernig hún kæmi fram við hann (áður en ég talaði við hana í einrúmi og "kynntist" henni aðeins). Hann lét mjög vel að henni og sagði að hún væri mjög góð við sig. Það var mikill léttir.

Hún sagði líka að bekkjarfélagar hans væru mjög góðir við hann og hann hefur ekki lent í neinu einelti eða neinu svoleiðis. Það bíða allir spenntir eftir að hann fari að tala. En auðvitað verður þetta erfiðara fyrir hann með hverjum deginum.

Hann fékk líka mjög góða dóma frá íslenskukennaranum Hlæjandi. En þar er hann allt öðruvísi í tímum. Þar þorir hann að tala og vera hann sjálfur. Vinnur mjög vel og er áhugasamur.

En ég óska þess svo innilega að það er hægt að hjálpa honum út úr þessu.

Ég verð nú að segja frá einu fyndnu sem hann gerði!!
Hann teiknaði rosalega flott mynd í skólanum. Myndin var af trúð sem var með 3 bolta á hausnum og sat á hjóli með einu dekki. Þetta var rosalega flott nema að trúðurinn var með lafandi brjóst niður á nafla Brosandi, hahaha... ég sprakk úr hlátri þegar ég sá það.

En jæja læt þetta duga í bili...
Skrifa aftur á sunnudaginn.
Knusss...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Önnur tilraun!

13. nóvember 2007 klukkan 19:28

Og eins gott að þetta takist núna Öskrandi.
Seinni partur síðustu viku fór í að lesa undir próf. ZZzzzzz..... hrikalega verð ég alltaf þreytt þegar ég hugsa um próf, hvað þá þegar ég byrja að lesa, skil ekkert í þessu!!! Ég kom mér agalega vel fyrir í sófanum á fimmtudaginn og fór að lesa og las og stein sofnaði Hissa. Mig dreymdi alveg stór furðulega og meðan ég svaf var eins og líkaminn væri sofandi en undirmeðvitundin vakandi og ég var allan tímann að berjast við að standa upp. Svo loksins þegar ég vaknaði stökk ég á fætur og var að drepast í öxlunum!!! Á föstudag ákvað ég að koma mér fyrir á öðrum stað og lesa, s.s. í baðkarinu, hver sofnar í baði að morgni til? Ó jú, það er hún ég!!! Vaknaði síðan í ísköldu vatni og endaði við að lesa við eldhúsborðið án þess að sofna. Ég náði nú þessu blessaða prófi en ég er hrikalega fúl með þessa dönsku einkunnargjöf. Það er komin ný einkunnargjöf hér í landi og samkvæmt henni fékk ég 4 (á gamla skalanum er það 7/8, önnur bekkjarsystir mín fékk 3 villum minna en ég og fékk 10 og ein önnur bekkjarsystir fékk 7 villum minna en hin og fékk líka 10. Þetta getur nú varla verið fáránlegra. Einkunnargjöfin er á skalanum -3 til 12 minnir mig.
En ég náði allavega en er ekki sátt. Strokaði út nokkur rétt svör og gerði vitlaus í staðinn.

Á síðasta laugardag var kvennadagurinn. Það var mjög gaman. Fórum í Wellness center í sund, sauna og "heitann" pott, hann var frekar volgur og það sprautaðist kalt vatn úr botninum. Síðan fórum við út að borða á Mexican bar og síðan var kíkt á skemmtistaðina.
Binni fór til Hamborg á laugardaginn með fullt af strákum, rosa gaman hjá þeim. Þeir fóru í Go kart á stað sem heitir Ralph Schumacher, einhver rosa flott braut.
Strákarnir fóru í pössun á sitthvorn staðinn og nutu sín báðir í góðum félagsskap Brosandi.

Á sunnudagskvöldið var okkur boðið í mat hjá Svan og Elsu. Maturinn var rosa góður og Ásbjörn sá lifandi kisuna þeirra í fyrsta skiptið. Eftir matinn fundu Ásbjörn og kisan sér góðan stað í góðu næði frá öllum öðrum. Þegar við kíktum á þau, lá kisan í þvílíkum makindum og malaði hástöfum Brosandi. Þegar við vorum að fara heim byrjaði Ásbjörn að kvarta um verk í augunum og var orðinn rauður og þrútinn. Hann kældi augun á leiðinni heim með kaldri tusku og fór svo beint úr fötunum og í bað. Honum leið strax betur eftir það. Ég hef nú aldrei áður séð ofnæmi (ormaæði eins og Ásbjörn misskildi migGlottandi) en ég er nokkuð viss um að það hafi verið að angra hann Fýldur. Ég man ekki eftir að hann hafi verið svona lengi nálægt ketti áður eða allavega fengið að klappa svona lengi en hann þolir allavega vel hunda og hestahár (thank God). En þetta er samt mjög sorglegt því hann elskar dýr og var ný búinn að segja við mig að kisur eru uppáhalds dýrin hans Fýldur. En þetta kemur allt í ljós næst þegar hann hittir kött!!

Já! Svo erum við orðin bíllaus!!! Skömmustulegur
Það er búið að klippa númerin af bílnum, hehemm...
Leyfið okkar rann út í ágúst... og tíminn líður bara svo rosalega hratt Skömmustulegur. En við erum nú eiginlega bara búin að vera að bíða eftir að vera tekin, endalaust búin að trassa þetta. En nú er verið að vinna í að fá dönsk númer og það tekur tíma og þolinmæði. Enginn veit neitt í Dk. og fólk er sent hingað og þangað og fær engin svör, bara gaman að því Öskrandi. Það tókst samt að fara með bílinn í skoðun í dag... og hann fékk endurskoðun, hann mengar ALLTOF mikið plús eitthvað fleira.
Nú er bara hjólað um allt!!! Við höfum bara gott að því en samt verst hvað er orðið kalt. Binni og strákarnir fá nú að finna fyrir því frekar en ég. Svanur og Elsa voru svo elskuleg að lána okkur bílinn sinn í dag. Binni fór m.a. með strákana útí bæ til að galla þá upp fyrir veturinn, eigum bara eftir að kaupa snjóbuxur.

Það er "löng" vika hjá mér núna! Ætla í skólann á fimmtudaginn og gisti því í Fredericia aðfaranótt fimmtudags. Ég get varla beðið eftir að klára skólann, bara tæpir 4 mánuðir eftir. Það er frekar þreytandi að þvælast svona á milli.

Það eru Bubbatónleikar í Flensborg á laugardaginn. Ég var alltaf á báðum áttum hvort ég ætti að fara og hverjum ég gæti farið með en nú er hætt að selja miða en ég ætla að prófa að senda mail. Mig dauð langar að kíkja þangað.

Jæja, ég þori varla að ýta á vista Gráta... en verð víst!

Kærar kveðjur...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

!#"#$#$%#$&

11. nóvember 2007 klukkan 20:55
Ef þetta er ekki pirrandi þá veit ég ekki hvað!!!!!

Ég var búin að skrifa HELLING og það datt ALLT út þegar ég vistaði það.
Ég nenni ekki að skrifa það aftur núna, er að fara í próf á morgun.
Geri aðra tilraun í vikunni.

Knús...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Hvert fór helgin???

04. nóvember 2007 klukkan 21:06
Hún var bara ALLTOF fljót að líða Óákveðinn. Ég er vön að vera í fjögurra daga helgarfríi en fór í skólann síðasta fimmtudag og fékk því bara þrjá daga í frí. Ég held ég sé bara orðin of góðu vön!!!

Á föstudagskvöld fór ég í mat til Jónu, ásamt hinum gellunum úr föndurklúbbnum. Fengum steinasteiktan mat, hrikalega gott og svo auðvitað hvítvín. Síðan kíktum við á barinn í háskólanum og þar var FULLT af fólki og kíktum síðan í bæinn og þar var líka FULLT af fólki. Og ástæðan
fyrir því var að Jólabjórinn er kominn. Já haldiði að það sé nú sæla í Danaveldi Hlæjandi. Við kíktum inná einn skemmtistað sem var svo troðfullur að það var varla hægt að snú sér við þar inni og þar voru spiluð jólalög. Það er nú alltof snemmt fyrir minn smekk. Ég held ég hafi verið komin heim til mín rúmlega tólf enda ekki ætlunin hjá mér að fara á djammið.

Á laugardag fór Ásbjörn í afmæli hjá bekkjarbróður sínum og fannst mjög gaman. Og á meðan kíktum við Jóhann Ingi í heimsókn til Hörpu að sjá nýju kisuna hennar. Það var frekar fyndið þegar ég sagði honum að hún ætti kisu. Hann opnaði munninn uppá gátt, agalega hissa og spurði svo: Á hún lifandi kisu??? Svo gapti hann bara og augun voru næstum komin útúr honum.
Harpa kom síðan með okkur heim og þar beið þeirra Mónika Rós og þau léku öll voða vel saman Brosandi.

Í dag, sunnudag fórum við í afmælisveislu hjá Alexander og Evu Karen. Þar var þvílíkt og annað eins hlaðborð (ekki megrunarvænt) en auðvitað verður maður að smakka!! Og smakka aðeins meira og...!!!! Og svo rúllar maður heim.

En nú fer ég að drullast til að kaupa kort í ræktina, ég er næstum alveg laus við alla verki eftir aðgerðina þannig að nú er engin afsökun lengur.

Næstu helgi stefni ég á að fara á kvennadaginn hér í bæ. Þ.e.a.s. ef ég fæ pössun fyrir strákana. Binni fer til Hamborg næsta laugardag í Go kart eða eitthvað svoleiðis og svo er hann alveg ólmur í að komast í Ikea Glottandi, þannig að hann nýtir ferðina og kíkir þar við.

Nýjar myndir komnar inn: Afmælisveislan hans J.I., Úti að leika með ömmu, Gaman í leikfimi og Glymur 2007.

Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Nýjar myndir...

01. nóvember 2007 klukkan 19:57
Póllandsmyndir komnar inn. Set inn myndir úr afmælinu hans Jóhanns Inga um helgina og eitthvað fleira. Mín ekkert smá aktiv í myndunum þessa dagana Glottandi.

Annars bara lítið að frétta. Ásbjörn orðinn hress og allt gengur sinn vana gang.

Smá fréttir úr skólanum.
Eftir áramót eigum við að fá meiri kennslu... júhúú...  fáum bóklega kennslu mánudaga og miðvikudaga og svo annan hvern þriðjudag fáum við að æfa sérmeðhöndlanir á okkur sjálfum og fáum extra kennslu í því.
Já, ótrúlegt en satt þá eru góðar fréttir af skólanum að þessu sinni. Kennarinn sagði okkur samt að ef skólasyjórinn spyr okkur af hverju við erum ekki bókaðar þessa daga þá vitum við ekki neitt og eigum að segja henni að tala við kennarann!!! Kennarinn ætlar sem sagt ekki að fá leyfi fyrir þessari auka kennslu heldur bara að láta vaða. Við vorum að telja upp fyrir henni hversu margar kennslustundir við höfum fengið í hinum og þessum fögum og hvernig kennslan var, og hún átti ekki orð yfir þessu Hissa, þannig að við nemendurnir erum alveg í skýjunum yfir að fá loksins KENNSLU að viti (vonandi) Hlæjandi.

Annað kvöld fer ég í föndurklúbb til Jónu. Hún ætlar að bjóða okkur í mat og drykk og svo verður sko föndrað!!!!

Á laugardag fer Ásbjörn í afmæli til bekkjarbróður síns og á sunnudag förum við öll í afmæli til Alexanders og Karenar Evu.
Bara nóg að gera Brosandi.

Nóg í bili!!!

KNÚS...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Home sweet home.

30. október 2007 klukkan 10:41

Jæja þá er maður komin heim eftir yndislega helgi Brosandi. Við vorum í borg sem heitir Stettin og liggur við landamæri Þýskalands. Gistum á Hótel Radisson sas sem var mjög fínt og flott morgunverðarhlaðborð. Ég var í herbergi með Möggu Lukku og Láru. Við vorum komin á leiðarenda um miðnætti á fimmtudagskvöld og það ótrúlegasta og fyndnasta var að fyrsta fólkið sem við mættum á herbergisganginum okkar voru ÍSLENDINGAR... en ekki hvað!!!!!
Það var ræs kl. 8 á föstudagsmorgun (nýta tímann), hent sér í föt og borðaður morgunmatur og kl. 9 lá leiðin til Peter vinar okkar í kristalsbúðinni. Hann er með þvílíkt úrval af pólska keramik stellinu (marglitu bollunum sem m.a. fæst í Byko) og slatta af kristal og glervörum. Sumar misstu sig þarna, aðrar ekki Brosandi. En ég keypti ekkert hjá honum fyrr en í næstu og þarnæstu ferð til hans, varð að skoða úrval annarsstaðar líka. Við kíktum líka við í dúkabúð og þar voru tvær pólskar konur að afgreiða sem töluðu bara pólsku, og það var algjör brandari að hlusta á samskipti þeirra og einnar úr okkar hóp. Hún talaði íslensku og þær pólsku og svo var bent hingað og þangað og þegar þær skildu sögðu þær tak (sem ég held að þýði frekar einmitt eða eitthvað í þá áttina) þetta var algjör snilld. En ég keypti mér tvo dúka á borðstofuborðið. Svo var moll við hliðiná hótelinu og þar var nú ekki mikið mál að gleyma sér í nokkra klukkutíma Glottandi. Ég fann mér kápu í H&M og er hrikalega ánægð með hana. Verð á fötum er frekar svipað og hér í Dk, kannski pínu ódýrara ef eitthvað er en ekkert til að eltast við. Og svo er til mikið úrval af fötum í pastellitum, æðislega lekkert Svalur. Á föstudeginum fórum við Magga í nudd. Það var náttúrulega æðislegt, klukkutíma heilnudd og svo fórum við bara uppá herbergi og undir sæng og höfðum það kósý að lesa vikuna. Um kvöldið fórum við að borða á Pizza Hut, það var orðið ansi langt síðan ég smakkaði það og svo fóru sumar í bíó og aðrar að slappa af, þar á meðal ég, kíkti á barinn á hótelinu með nokkrum af gellunum Glottandi.

Dagmar, Einar og Örn og Óskar, Hafdís og litla dúllan þeirra voru líka á sama hóteli og við Brosandi. Við Magga tókum rölt með Dagmar og co. á laugardeginum og svo var verslað og slappað af og keypt prince póló of course.
Á laugardagskvöldið fórum við allar saman út að borða á stað sem heitir Colorado. Það var mjög gaman og maturinn virkilega góður. Eftir það var bara farið aftur á hótelið og við Magga fórum á barinn á 11 hæð og fengum okkur einn drykk fyrir svefninn.

Á sunnudeginum var Peter ræstur út!!! Maðurinn í kristalsbúðinni. Hann var búinn að gefa okkur símanúmerið sitt og sagði að við mættum ræsa hann út á sunnudeginum og hann yrði mættur eftir hálftíma, sem hann líka gerði og þá var verslað ennþá meira Hlæjandi.
Eftir að við komumst svo út úr búðinni (karlinn getur talað alveg endalaust mikið og við vorum búnar að mæla okkur mót við hinar stelpurnar fyrir brottförina heim! Hann var heilar 45 mín. bara að pakka dótinu í kassa fyrir okkur og afgreiða. Hann gat ekki talað og unnið á sama tíma Öskrandi )

En allavega þá náðum við að fá okkur að borða og lögðum svo af stað heim rúmlega eitt og vorum komar um kl. 20,30

Það var voða gott að koma heim. Binni var búinn að elda rosa góðan mat og strákarnir svo ánægðir að sjá mig. Ásbjörn var veikur og var alveg límdur upp við mig sem er frekar óvenjulegt því hann er ekki þessi kelirófa eins og bróðir sinn. Vildi sitja í fanginu á mér og láta strjúka hárið og fékk svo að sofa í hálsakotinu um nóttina Brosandi.

Ég fór síðan í skólann í gær og er núna heima með Ásbjörn.

Já ég gleymdi alveg að skrifa að ég keypti líka nokkrar jólagjafir, wiskýglös fyrir Binna, skál fyrir mig og jólaskraut og dót fyrir strákana.

Ég ætla að nýta tímann í dag og þrífa... real live again.... og leyfa Ásbirni að komast í tölvuna Brosandi.

Og eitt enn... mamma og pabbi eru að koma til okkar 4 des. þannig að nú tel ég bara niður Hlæjandi, ætla samt ekkert að segja strákunum frá þessu strax. Íris, Siggi, Arnar Daði og Gylfi eru líka að koma á sama tíma Hlæjandi og verða hjá Svan og Elsu.... jiii... hvað þetta verður gaman Glottandi.

Eiit enn:
Bergþóra, Hannes og Jón Gautur, til hamingju með litlu prinsessuna Brosandi.

brútzki, grússkítz... Mínerva Prolottzki (nýtt nick name!!)

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Og það tókst.......

23. október 2007 klukkan 20:14
Já gott fólk... það er komið nýtt myndaalbúm hér til hægri á síðunni undir Tenglar.

Ég dröslaði mér út áðan og hjólaði til Láru og hún barasta reddaði þessu þessi elska Hlæjandi. Og nú kann ég meira að segja að færa myndir úr öðru albúmi og yfir í þetta. Haldiði að það sé nú snillingur hér á ferð!!! En svo ég sé nú ekki að gera ALLTOF mikið úr snilligáfunum í mér þá var þetta svo einfalt að ég ætti alls ekki að vera segja frá því Skömmustulegur.

Annars er það að frétta af okkur að Jóhann Ingi er kominn með ælupest Óákveðinn. Hann byrjaði að æla á leikskólanum þegar hann var sóttur og er búinn að æla nokkrum sinnum hér heima og er búinn að vera ansi slappur. Hann er hitalaus svo vonandi verður þetta stutt pest.

Ásbjörn skrapp til Óla vinar síns eftir skóla og var boðið í mat hjá honum. Það fannst mínum sko ekki leiðinlegt Brosandi.

Svo er bara langur skóladagur á morgun og Pólland á fimmtudaginn Glottandi. Ég er auðvitað ekkert farin að pakka, geri það bara á síðustu stundu eins og venjulega. Algjör óþarfi að vera að breyta útaf vananum.

Annað var það ekki í bili.
Ég set fleiri myndir inn fljótlega, á eftir að tæma myndavélina.

Over and out...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Smá endurnæring....

21. október 2007 klukkan 20:09
eftir leti síðustu daga. Ég sit hér við tölvuna með grænan, rakagefandi maska, agalega lekkert Hlæjandi. Búin að djúphreinsa andlitið og lita á mér augabrúnirnar. Mikið hlýtur ykkar að líða vel að vita þetta Glottandi. Þykist ætla snemma að sofa í kvöld því sælan er úti!! Skóli á morgun.

Síðasta vika hefur farið í afmælisundirbúning. Eftir skitteríið síðasta mánudag var ákveðið að halda afmælið á fimmtudaginn. Það var bakað og þrifið og ekki amalegt að hafa Jónu hér til að hjálpa til. En annars var þetta bara voða afslappað hjá okkur, ekkert stress Glottandi. Veislan var mjög fín, fengum fullt af skemmtilegum gestum og Jóhann Ingi var alveg í essinu sínu Brosandi.

Morguninn eftir var okkur boðið í 5 ára afmæli til Hrafns Jökuls, vinar strákanna. Það var voða fínt og ekki vantaði fjörið Glottandi.

Á seinnipart föstudags fórum við Jóna (sem er með mér í skólanum) til einnar sem var með okkur í skólanum en útskrifaðist í sept. Kennarinn okkar var með Nu Skin kynningu hjá henni og þar var okkur boðið í mat og alles, voða huggó Brosandi. Fengum allskonar kjöt, grillað á steikarstein og allskonar meðlæti og rauðvín og eftirrétt. Þetta var rosa kósý og gaman.

Á laugardaginn hjólaði Ásbjörn til Hrafns og við Jóhann Ingi fórum til Alexanders. Ég labbaði og hann hjólaði, hann er núna farinn að taka sjálfur af stað á hjólinu og ég má alls ekki hjálpa honum Brosandi. Sjálfstæður og duglegur strákur.

Það var frekar fyndið í gær! Það gekk ALLT á afturfótunum hjá J.I. greinilega ekki hans dagur. Hann var orðinn hálf miður sín eftir þetta allt saman. Hann braut disk, missti heilann kassa af kókosbollum í gólfið (fékk að ryksuga sjálfur sem honum fannst bara gaman!) og skemmdi uppröðunina hjá okkur öllum í Lúdó spili, því spilið var á sófanum og hann ýtti í miðjuna á því og allir karlarnir útum allt. Greyið hefur svo lítið hjarta og hann var SVO miður sín yfir þessu öllu saman, eldroðnaði og varirnar víbruðu við að halda tárunum inni Gráta. Ég og Ásbjörn sprungum úr hlátri og greyið henti sér í fangið á mér og barðist við tárin. Eftir á fannst honum þetta frekar fyndið og minntist síðan aftur á þetta í dag. Sagði að það hafi bara allt runnið úr höndunum á honum í gær, skildi ekkert hvað hafi eiginlega komið yfir sig. Það hafa allir einhverntímann átt svona dag og oftar en einu sinni en það var bara svo krúttlegt að fylgjast með þessu litla stýri kljást við þetta Brosandi.

Síðan í morgun var komið að kveðjustund við Jónu ömmu. Binni og Ásbjörn skutluðu henni til Kaupmannahafnar en við Jónki tröll vorum heima í leti. Það er nú bara ansi tómlegt hérna eftir að Jóna er farinÓákveðinn og ekkert smáræði sem hún er búin að hjálpa okkur hérna.
Kærar þakkir fyrir alla hjálpina Jóna mín og skemmtilegar samverustundir.

Við Jóhann Ingi höfðum okkur nú samt aðeins útúr húsi í dag. Við röltum okkur í heimsókn til Dagmar og co. og fengum þar dýrindis vöfflur með rjóma Ullandi.
Síðan fór ég með Ásbjörn og Jóhann Inga í heimsókn til Tristans. Og það er náttúrulega alltaf jafn gaman Brosandi. Lára gaf mér nú góðar upplýsingar um hvernig ég geti sett nýtt myndaforrit á bloggið mitt en..... við Binni erum eitthvað búin að vera að prófa en það var ekki alveg að virka hjá okkur. Ég náttúrulega alltaf jafn græn... sérstaklega núna með þennan maska!!!  Þannig að Lára á von á mér í heimsókn aftur sem fyrst Skömmustulegur. Ég ætlaði að setja Picasa forrit inn en þá þarf að skrifa inn notendanafn og lykilorðið af mailinu mínu til að komast inná það!!!  En allavega er þetta myndadæmi í vinnslu Brosandi.

Svo átti
Snorri Fannar frændi minn afmæli á föstudaginn. Til hamingju með 11 ára afmælið elsku frændi. Ég hefði sko verið til í að mæta í kaffi til þín í dag Brosandi.

Og á morgun á Skúli frændi afmæli. Mér finnst það nú alveg ótrúlegt að hann sé orðinn 16 ára gamall og kominn í framhaldsskóla!!!  Ég var alltaf að fá hann lánaðann þegar hann var lítill Brosandi. Jiii... hvað tíminn getur liðið hratt...
En til hamingju með daginn Skúli minn.

Nú held ég að ég ætti að fara að týgja mig í draumalandið og meðan ég man... að þrífa af mér maskann. Hann er orðinn að rennsleipu geli þannig að ég verð örugglega háglansandi á morgun!!!

Þar til næst....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Sparigrísinn við góða heilsu!!!

17. október 2007 klukkan 08:08
Og allir hinir líka Glottandi. Ég fer að láta taka saumana í fyrramálið, það verður fínt að losna við þá Brosandi, ég þarf bara að spurja hvort það sé eðlilegt að það verki ennþá á staðnum sem gallblaðran var tekin. Kannski eru bara ennþá bólgur þarna?

En það verður nóg að gera í dag. Klára að baka og renna aðeins yfir gólfin því afmælisveislan verður á morgun.
Við Jóna vorum agalega duglegar í gær. Jóna þreif herbergi strákanna hátt og lágt og ég tók til í eldhúsinu. Er búin að taka 3 skápa í gegn. Kannski ég kalli það bara jólahreingerningu!!!! En annars tek ég aldrei skápana í gegn fyrir jólin, geri það bara þegar mér finnst þess þurfa. Það er nóg annað að gera fyrir jólin en að húka inní skápum!!!

Við fengum Hrafn og Hörpu Ósk í heimsókn til okkar í gær. Voða gaman, en við vissum varla af þeim eins og vanalegaBrosandi.

Seinnipartinn skruppum við til Deutschland og strákarnir voru í pössun hjá Elsu og Svan á meðan. Við versluðum slatta fyrir afmælið, sérstaklega nammi og gos og svo auðvitað eitthvað í matinn.

Ég verð nú að skrifa um hvað ég fann út í búð um daginn!! Ég fann íslenskar fiskibollur í dós. Hér heita þær Islandske fiskeboller fra Bådsmand, produceret af Ora i Island Hlæjandi. Nammi namm, fiskibollur í bleikri sósu.
Og svo er náttúrulega líka hægt að kaupa hreint skyr.is hérna en mér finnst skyr ekkert gott.

Svo styttist bara óðum í að ég byrji aftur í skólanum Óákveðinn. Það verður frekar erfitt að byrja aftur eftir heilar tvær vikur í leti. En vikurnar eru samt svo fljótar að líða.
Á fimmtudaginn í næstu viku fer ég til Póllands. Það verður sko gaman, pólskur Wodki og Wellness Svalur, haha... (er ekki annars til pólskur wodki?). Ég ætla allavega í eitthvað dekur, helst í nudd Brosandi. Og auðvitað að versla einhverjar jólagjafir. Mér finnst bara svo fáránleg tilhugsun að maður sé farin að hugsa um jólin um miðjan október!! En auðvitað er fínt að nýta tímann, byrja snemma og geta sent þetta frá sér tímanlega. Það eru komnar jólavörur í einhverjar búðir og það var slatti af því dóti í Þýskalandi. Við tókum ekkert jóladót með okkur þegar við fluttum svo ég ætti að geta fengið smá útrás Brosandi.... en ekki alveg strax.

Best að ég fari að hætta þessu bulli... er bara að teygja lopann núna!!

Knús og kremjur...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan