Hugmyndasnauð á haus!!!

14. október 2007 klukkan 18:23

Hrikalega finnst mér alltaf erfitt að finna haus á færslurnar Óákveðinn
En allavega... þá er enn ein helgin að verða búin OG fyrri frívikan mín. Þessi vika hefur reyndar verið hrikalega lengi að líða enda er ég ekki búin að gera neitt að viti Óákveðinn.
Í lok vikunnar fór ég reyndar að byrja að hreyfa mig!! Hef verið að taka mér stutta göngutúra, maður verður bara þunglyndur á að hanga og gera ekki neitt en ég var nú samt ekkert illa stödd Glottandi. Bíð samt eftir því að losna við saumana, þá þarf ég allavega ekki að hafa áhyggjur af því að slíta þá.

Á föstudagsmorgun vöknuðum við Jóna "frekar snemma" og kíktum til Gråsten í búðir og röltum síðan hring í drottningargarðinum. Það er farið að kólna svolítið en veðrið er samt búið að vera yndislegt, blanka logn og heiðskýrt.

Á föstudagskvöldið fór ég á kaffihús. Hitti þar Póllandsfarana og þar var farið yfir stöðu mála!!! Iss hvað þetta er eitthvað formlega orðað!!

Á laugardag fórum við með strákana í klippingu til Jónu þannig að það er allt annað líf að sjá hausana á þeim. En þegar við vorum komin út þá tókst Jóhanni Inga að hlaupa á grindverk og fá gat á hausinn. Við vorum á báðum áttum um hvort við ættum að láta sauma hann en ákváðum svo að sleppa því, þetta leit ekki það illa út.
Þetta ástand á okkur hérna fer nú að verða hálf vandræðalegt, allavega ef þetta fer ekki að fara batnandi, þá meina ég sjúkrahús-ástandið! Annað hvort endar þetta með því að við förum að þekkja allt starfsfólkið þarna eða bara að það verði hætt að svara í símann þarna ef við hringjum??? Hummm... hvort væri nú líklegra??? Saklaus

Seinni partinn á laugardag fórum við í grillveislu. Þar var fullt af fólki og fullt af börnum og mjög gaman. Strákarnir skemmtu sér konunglega enda risa stórt trampólín í garðinum og við vissum varla af þeim allan tímann meðan við vorum þarna.
Binni kíkti með nokkrum strákum í partý en ég fór bara snemma að sofa.

Í dag ætlaði ég nú að gera svo margt...en var síðan bara aðallega löt. Ég ætlaði að byrja að baka fyrir afmælið hans J.I. en það varð bara ekkert af því!! En ég fór með strákunum og Jónu niður að tjörn að gefa öndunum og brjáluðu mávunum brauð. Við vorum þarna örugglega í u.þ.b. 2 klst. veðrið var svo frábært og við hittum Alexander vin þeirra og co. við tjörnina þannig að við náðum að viðra okkur ágætlega í dag Brosandi.

Strákarnir eru í vetrarfríi alla næstu viku nema kannski einn dag. En Ásbjörn á að mæta kl. 7.45 í röntgen í fyrramálið, þannig að það verður enginn sofa út dagur á morgun!!
Ég er orðin pínu kvíðin fyrir því hvað þeir ætla að gera við hann því stykkið hefur ekki enn skilað sér út!!

Þannig að næsta frívika er alveg óráðin. Það fer alveg eftir því hvað  verður gert við Ásbjörn karlinn.

Ég ætlaði að fara að setja inn myndir, en ég er víst komin í skuld fyrir myndaplássi og eina leiðin til að borga er í gegnum símareikninga!!! En ég held að það sé bara vesen í gegnum erlendan síma og örugglega miklu dýrara þ.e.a.s. ef það er þá hægt?? En ég sendi fyrirspurn til bloggar.is fyrir nokkrum mánuðum síðan um það hvernig ég geti borgað fyrir myndaplássið en hef aldrei fengið svar frá þeim!!! Ég verð að skoða þetta eitthvað betur Óákveðinn.

Bið að heilsa í bili....
                                 Knús.........

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Kominn heim.

11. október 2007 klukkan 10:52
Þá er prinsinn kominn aftur heim eftir 5 stjörnu sjúkrahúsdvöl Brosandi. Hann var alveg til í að vera lengur þarna og spurði hvenær við kæmum þangað aftur!! Hann fékk rosa fínan bangsa áður en hann fór í svæfinguna og svo fékk hann blöðrur hjá einum trúð sem var í heimsókn á barnadeildinni í gær og eh. fleira dót. Svo kom galdranorn í morgun og var með einhverskonar brúðuleikhús. Og svo hafði hann Play Station 2 tölvu inná herbergi hjá sér og gat valið úr fullt af leikjum. Þannig að mínum leiddist sko ekkert.
En honum gekk frekar erfiðlega að vakna eftir svæfinguna í gær og ældi í gærkvöldi. Hann var ekki búinn að borða neitt í rúman sólarhring og kom ósköp litlu ofaní sig í gær, en í morgun kom listin aftur og minns borðaði heila 3 diska af morgunkorni. Fórum svo í bakarí á heimleiðinni og keyptum eitthvað gott.
Honum fannst samt frekar svekkjandi að komast ekki í skólann í dag, því hann væri að missa af íslenskutíma!!! En hann ætlar sko í skólann á morgun og fer í bíó að sjá Shrek 3 Brosandi.

Hann á að mæta aftur í röntgen á mánudaginn þ.e.a.s. ef þetta er ekki komið niður úr honum þá. Og ef þetta er þarna ennþá þá verður annað hvort reynt að ná þessu uppúr honum aftur með betri töng eða hann settur í uppskurð.

En afmælið hans Jóhanns Inga verður að fá að bíða betri tíma Glottandi, en vonandi getum við lokið því af í næstu viku. Hann er samt ekkert farinn að rukka um það.

En fleira var það ekki að þessu sinni!!!
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Önnur svæfingin!!

10. október 2007 klukkan 12:13

Þetta er nú meira ástandið á þessari fjölskyldu.
Ásbjörn fór í röntgenmyndatöku í morgun til að ath. með hlutinn sem hann gleypti og hann sat enn á sama stað. Þannig að nú er hann í svæfingu og það á að sækja hlutinn. Hann var bara voða brattur þegar ég heyrði í honum áðan og hann nennti ekkert að tala við mig Óákveðinn, honum finnst frekar leiðinlegt að tala í síma þannig að ég tók þessu ekkert persónulega Glottandi. En mér finnst voða leiðinlegt að húka hér heima og geta ekki verið hjá honum Fýldur. Ég treysti mér ekki til að fara með hann í morgun svo Binni tók sér frí í skólanum. Ég er að reyna að taka því rólega hér heima en það er frekar erfitt að horfa á mömmu hans Binna vesenast í þvottinum og nú er hún á fullu að ryksuga og ég geri ekki neitt og ef ég reyni að gera eitthvað fæ ég að heyra það Skömmustulegur.
Ég er samt miklu betri núna en í morgun. Ég tók bólgueyðandi töflur og er miklu betri eftir það.

Í gær voru hálfgerð jól hjá strákunum!! Pakkaflóð til þeirra beggja. Takk fyrir strákana Brosandi. Monika Rós og Stebbi pabbi hennar komu til okkar með kökur og svo fór Stebbi á Mc´donalds og sótti barnabox fyrir krakkana. Þannig að það var kósý lítil veisla hér í gær Brosandi.
Svo var leikið og spilað á spil og voða gaman hjá þeim. Ég var að spá í að halda uppá afmælið hans Jóhanns Inga á mánudaginn. Þá eru flestir í vetrarfríi og þá get ég verið komin í gang fyrir helgi og bakað um helgina Hlæjandi. Þannig að þeir sem ætla að mæta, endilega að drífa sig að panta flug HlæjandiHlæjandi.

Ég læt vita hvernig gengur með Ásbjörn.
Bless í bili.

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Hann á afmæli í dag.....

09. október 2007 klukkan 06:08

Til hamingju með afmælið Jóhann Ingi.
Já loksins orðinn 4 ára Hlæjandi. Hann leit geislandi á mig í morgun með fjóra putta upp í loftið og svo sýndi hann mér ylina á sér og bað mig að sjá hvað hún væri orðin stór Hlæjandi. Svo fékk hann að opna einn pakka áður en hann fór í leikskólann. Trítlaði síðan út með nammiköku og nammipoka til bjóða krökkunum í leikskólanum.
Afmælisveislan sjálf fær að bíða þar til um eða eftir næstu helgi. Kemur í ljós í vikunni!!!

Í gærmorgun mætti ég á Aabenraa sjúkrahúsið kl. 7.15
Fór í blóðprufu og fleira og fór svo í aðgerð um kl. 10.30 Ég var eiginlega rotuð allan gærdaginn, svaf meðan ég beið eftir að fara í aðgerðina og var því ný vöknuð þegar ég var svæfð. En þetta gekk allt saman mjög vel. Það voru gerð 3 göt á magann á mér og aðgerðin sjálf fór fram í gegnum naflann! Þannig að ég er svolítið bogin þessa dagana. Síðan var ég dottandi í allan gærdag, ég var eiginlega farin að skammast mín, ég var alltaf sofandi þegar hjúkkan kíkti inn til mín Skömmustulegur. Ég fór heim um kl.21 í gærkvöldi, ég nennti ekki að gista þarna. Það er miklu betra að vera veikur heima hjá sér Glottandi.
Ég á sjálf að skipta um plástra og á svo að fara til heimilislæknis til að láta taka saumana eftir 10 daga. En ég ætti að vera orðin full frísk fyrir næstu helgi Brosandi.

Fleira var nú ekki í fréttum hjá okkur að þessu sinni Brosandi.
Over and out...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Enn ein sjúkrasagan!!!

07. október 2007 klukkan 11:27
Það er alltaf sami höfuðverkurinn við að byrja skrifa!!! Vikurnar eru alltaf eins en svo koma helgarnar sem brjóta aðeins upp það hversdagslega!!
En allavega erum við fjölskyldan orðnir hálfgerðir fastagestir á sjúkrahúsunum hér í nágrenninu!!! Ég, Binni og Jóhann Ingi erum öll búin að nýta okkur sjúkrahúsin undanfarnar vikur og nú var komið að Ásbirni. Á föstudaginn gleypti hann eitthvað plaststykki sem hann fann útá götu. Hann var reyndar búinn að skola það og var víst eitthvað að stinga því uppí sig og það bara rann ofaní hann!! Greyið fékk þetta þvílíka sjokk, hljóp öskrandi um alla íbúð af hræðslu en náði sér síðan aðeins niður og gat sagt okkur hvað hafði gerst. Þetta var hringlótt plast eins og úr litlu stækkunargleri eða ég held og vona að þetta sé plast, ég sá þetta bara þegar hann var að dunda við að skola þetta. En allavega hefur hann náð að kyngja þessu alveg niður í maga svo við ákváðum að bíða með að fara til læknis. Næsta morgun varð hann ansi kvalinn og Binni fór með hann á sjúkrahúsið og þar var hann gegnumlýstur og hann fékk að sjá á mynd hvar stykkið sæti inní honum. En læknarnir héldu að kvalirnar hafi komið þegar stykkið var á leið í þarmana og vildu bíða með að gera eitthvað, því kannski færi það bara út með leið nr.2. Ekkert hafði gerst í morgun og því fór hann aftur í myndatöku núna áðan og brósi með. Plastið var enn inní honum og læknirinn sagði honum að borða mikið og drekka mikið og á svo að mæta aftur í myndatöku á miðvikudaginn. Minns bað um þriggja rétta hádegismat þegar hann kom heim, ætlar greinilega að taka lækninn á orðinu Glottandi.

Helgin er annars búin að vera súper skemmtileg. Við Binni fórum í afmæli á föstudaginn. Þar var þetta þvílíka hlaðborð, bæði matarkyns og fljótandi. Síðan var farið í keilu, ekki minn keilu-happadagur þennan daginn Skömmustulegur. Ég gat ekki neitt!! Skíttapaði í fyrstu umferð en komst síðan í annað sætið í næstu umferð Glottandi en við náðum ekki að klára þann leik. Síðan fór ég í einn pool leik, ég held ég hafi hitt tvær kúlur ofaní, önnur var hvít!! og hin var í réttum lit. Já svona er maður nú hittin!! Binni fór heim eftir keiluna en ég kíkti í bæinn og var þar fram á morgun. Kannski náði ég að dotta í klukkutíma samanlagt í gær en svo hresstist ég við hvítvínsglas seinnipartinn Hlæjandi.

Í gær buðum við Einari og Dagmar út að borða í Þýskalandi. Þau eru búin að vera okkar stoð og styttur meðan Binni var brotinn og líka fyrir það og eftir. Þau vissu ekkert hvert við vorum að fara, settust bara uppí bílinn og þar fengum við hvítvín og bjór. Svo lá leiðin á Hanses braueri í Flensborg. Það er brugghús/veitingastaður, þeir brugga bjórinn á staðnum. Það var live tónlist eða þeir spiluðu eitt eða tvö lög og voru svo bara farnir í pausu!! En allavega borðuðum við á okkur gat, röltum svo um miðbæinn og kíktum inná pöbb og svo rúntuðum við aftur heim. Alveg frábært kvöld.

Síðan vorum við að kaupa okkur nýja myndavél. Hin var alveg úr sér gengin, þannig að nú hef ég enga afsökun við að vera löt að setja inn myndir.

Nú er fyrsti sunnudagur í október og búðir opnar. Þannig að best að fara versla!!!!
Klára kaupa afmælisgjafir og svo þarf ég að baka köku á eftir svo lillinn geti tekið með í leikskólann á þriðjudag.

Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Sko minns...

30. september 2007 klukkan 20:09

Verður fögurra ára í næstu viku og hjólar án hjálparadekkja Brosandi. Ég skrúfaði þau af í dag og minns bara hjólaði og hjólaði og hjólaði alla leið til vinar síns, sem er dágóð vegalengd og mamman fékk sko að svitna Ullandi. Ég þurfti bara að hlaupa á eftir honum en hann var samt voða almennilegur að hægja á sér til að ég gæti náð andanum Brosandi. Og hvað minns var montinn Hlæjandi, hann gjörsamlega geislaði Saklaus og mamman auðvitað líka, stolt af litla barninu sem er að verða svo stórt.

Helgin er búin að vera mjög fín hjá okkur.
Árný, Stebbi og Monika Rós borðuðu með okkur á föstudaginn og á laugardaginn komu Jóna Björk, Haffi og börn í heimsókn. Strákarnir náðu rosalega vel saman og er því beðið með eftirvæntingu að hitta Gabríel aftur Brosandi. Það yrði nú gaman að taka rúnt til Esbjerg einhvern daginn og kíkja á þau. Takk fyrir skemmtilega heimsókn Brosandi.

Um kvöldið hjólaði ég til Dagmar og Sólveigar. Við áttum alveg yndislega huggulega kvöldstund. Töluðum, hlógum og grétum og allt þar á milli Brosandi. Stútuðum nokkrum flöskum eins og okkur einum er lagið er við hittumst!!! öhömm... En þetta rann allt saman ljúft niður.

Já og svo er ein pirringsfrétt!!
Aðgerðinni var frestað til 8 okt. Og þetta er í annað skiptið sem þessu er frestað Fýldur. Ég röflaði aðeins í konunni sem hringdi í mig, sagði henni að þetta hentaði mér ekkert. Ég er búin að fá frí í skólanum og vikuna sem ég fer í aðgerðina er ég fullbókuð enda gert ráð fyrir að ég myndi mæta aftur þá Fýldur. En hún sagðist náttúrulega ekkert geta við þessu gert. Það er eins gott að þessi dagsetning standist. Ég nenni ekki svona veseni.

Á morgun kemur Jóna, mamma hans Binna til okkar Hlæjandi, en ég hitti hana því miður ekki fyrr en seinnipart þriðjudags v/ skólans. En svo á ég frí frá fimmtudegi og næstu 2 vikur á eftir Glottandi, því seinni vikan er vetrarfrí. Þannig að við ættum að geta eitt góðum tíma saman.

Læt þetta gott heita í bili, bestu kveðjur...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Aftur komin í samband við umheiminn!!

28. september 2007 klukkan 07:04
Þ.e.a.s. netsamband. Það er búið að vera eitthvað svo mikið að gera hjá mér að ég hef varla komist í tölvuna. Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur verið háður svona dauðum hlut!! En allavega er ég núna búin að kíkja í moggann (sem er algjört möst!) og nú hef ég tíma til að drita einhverri vitleysu hér inn Glottandi.

Það er svosem ekkert merkilegt búið að gerast hjá okkur. En þó ein gleðifrétt. Binni er laus úr gipsi Brosandi. Hann fór í röntgen í gær og allt leit vel út og hann fékk ekki einu sinni göngugips. Teinarnir í löppinni voru líka dregnir úr honum, án deyfingar og hann sagði að þetta voru verstu kvalir sem hann hafi hingað til upplifað. Það er eins og þungu fargi af honum létt Brosandi, hann komst í bað í gær og skutlaði strákunum í skólann í morgun og er nú bara með eina hækju til að styðja sig við meðan löppin er að jafna sig.

Í gær fór ég með Ásbjörn á fótboltaæfingu. Hann var lengi búinn að tala um að honum langaði að fara. Þetta var útiæfing (brrrr... hvað var kalt að standa þarna og horfa á) og hann var rosalega duglegur. Ég sagði þjálfurunum að hann hafi aldrei áður spilað fótbolta og þeir voru svo duglegir að segja honum til og rosalega almennilegir í alla staði. Ásbirni fannst rosalega gaman en hann var samt rosa feiminn en duglegur að láta sig hafa það þarna. Hann sagðist vilja halda áfram að æfa en samt bíða með að byrja þar til inniæfingar byrjuðu, þá er bara hans aldurshópur saman en í gær voru 5-7 ára krakkar saman. Ég vona samt að hann drífi sig aftur í næstu viku Brosandi.

Á þriðjudaginn hjólaði ég á körfuboltaæfingu en það var engin æfing þann daginn Óákveðinn. Ég var enganveginn að nenna að fara hreyfa á mér rassgatið en dreyf mig samt og ákvað að hjóla því ég vissi að það yrði bara kannski æfing.

Og djö.... var ég dugleg á sunnudaginn Glottandi. Ég þreyf bílinn!! Ryksugaði og þurrkaði innan úr honum og mikið hrikalega var hann ógeðslegur Öskrandi og það er BARA ég sem hef verið að nota hann Skömmustulegur (og ég segji frá þessu!!). Svo um kvöldið fór ég með hann á bílaþvottastöð og hef sjaldan skammast mín eins mikið Skömmustulegur. Það er nefnilega þannig með þennan "eðalvagn" að hann á það til að veina mjög hátt þegar maður startar honum (ég fer að eiga met í að renna mér niður í gólfið án þess að rota mig á stýrinu). Okey.. ég lenti í biðröð eftir þvotti og þurfti að færa bílinn framar í hvert skipti sem næsti bíll komst inn. Bíllinn veinaði í HVERT SKIPTI sem ég startaði honum og stundum tvisvar í hverri tilraun Skömmustulegur og jeminn hvað mig langaði til að vera ósýnileg. Og hann veinaði meira að segja þegar ég ætlaði út úr þvottastöðinni aftur og þar inni bergmálar. Hann hefur reyndar aldrei verið svona mikið slæmur á svona stuttum tíma, held að aðal ástæðan hafi verið að hann var orðinn bensínlítill. Vona það allavega!

En yfir í annað...
Ég fór í föndurklúbb í gærkvöldi. Keypti mér nýjan striga og meiri málningu, en ég og Jóna vorum þær einu sem mættu með föndur Óákveðinn, þannig að strigarnir voru jafn hvítir og þegar ég keypti þá þegar ég kom heim. Ég sem ætlaði að reyna rækta í mér listamanninn Svalur, bwahahaa....

Og á morgun ætla Jóna Björk og fjölskylda að kíkja í heimsókn til okkar. Kannski maður þykist vera eitthvað myndó og baki eitthvað? Hlæjandi

En ég held þetta sé orðið ágætt í bili.

Over and out...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Ein ég sit og suma.

21. september 2007 klukkan 07:03

Nú er ég bara ein í kotinu og þá nýti ég tímann og hangi í tölvunni!!! Það er búið að vera úrhellis rigning síðustu daga og nennarinn í mér eitthvað vanvirkur!!!
Ásbjörn er búinn að missa aðra tönn, og finnst agalega gaman að reyna að bíta í matinn sinn þar sem tennurnar vantar og þar af leiðandi er hann endalaust lengi að borða Ullandi.
Á miðvikudaginn var Itrædsdag í skólanum hans. Þá koma foreldrar í skólann og fara með börnunum í allskonar þrautir utandyra. En greyið Ásbjörn á svo ómögulega foreldra, ég steingleymdi þessum degi. Hafði svo mikið fyrir því að muna eftir foreldrafundinum sem var í skólanum í gær Óákveðinn. En ein fóstran tók hann að sér og svo þegar Binni ætlaði að sækja hann vildi hann vera lengur og fékk að vera með Ísabellu og foreldrum hennar, svo kíkti hann með þeim í heimsókn og skemmti sér konunglega Brosandi, þannig að þessi dagur endaði vel eftir allt saman. Ég fékk náttúrulega alveg nagandi samviskubit, allir krakkar með foreldrum sínum í leikjun nema mitt barn Fýldur. En vonandi kemur þetta ekki fyrir aftur.
Í kvöld fer Ásbjörn aftur í skólann og gistir eina nótt, rosa spennandi. Ég lofaði að baka kanilsnúða fyrir krakkana og svo koma aðrir með kökur og svo meiga þau líka taka nammi með. Þannig að það verður allsherjar partý hjá þeim Hlæjandi.

Í gær tók ég mig til og skráði okkur á biðlista eftir stærri íbúð Hlæjandi. Sótti um í sama hverfi og við búum í núna, nema 4 herbergja, með garði. Við förum beint í forgang á listanum því við búum í hverfinu. Svo sótti ég líka um í raðhúsi hér rétt hjá. Við viljum vera áfram hér í nágrenninu svo það sé stutt fyrir Ásbjörn í skólann, og hann þurfi helst ekki að labba yfir stóra götu á leið í skólann. En það eru þó alltaf umferðarverðir við gangbrautirnar á morgnana, sem stoppa bílana og hleypa gangani og hjólandi vegfarendum yfir, því það er tilfelli ef danir stoppa við gangbraut, hvað þá þar sem ekki er gangbraut til að hleypa fólki yfir!

Á þriðjudaginn fór ég í forskoðun fyrir aðgerð og fékk tíma 2 okt. Ég bjóst nú alls ekki við að komast svona fljótt að. Ég talaði við skurðlækninn og hún lét mig leggjast uppá bekk og sýndi mér allt sem yrði gert við mig, hvar götin verða stungin og alles. Síðan talaði ég við svæfingalækninn sem sagði mér frá svæfingunni og hvar lyfinu yrði dælt í mig og það allt, svo fór ég í blóðprufu og hjartalínurit. Ég var svo hissa á öllum þessum upplýsingum sem þau gáfu mér, þau sögðu mér allt. Ef eitthvað myndi klikka við aðgerðina, þá myndu þau gera þetta og þetta og þetta o.s.frv. og svo fékk ég líka bæklinga og símanr. sem ég get hringt í ef mig vantar að vita eitthvað.
Og Jóna mamma hans Binna ætlar að koma til okkar 1 okt. og aðstoða fatlafólin meðan á þessu ástandi stendur Hlæjandi. Það verður alveg yndislegt að fá hana til okkar.

Ég man nú ekki eftir fleiru í bili til að blaðra um. Ætti kannski að fara að hefa deig!! Og lave kanilsnegle???

Bestu kveðjur...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Hann er tannlaus greyið...

18. september 2007 klukkan 08:18

Jæja, þá er önnur lausa tönnin hans Ásbjörns dottin úr. Og þvílíkt og annað eins hvað minns var stoltur Hlæjandi. Og bróðir hans ekkert minna stoltur!! Sá yngri hljóp eins og óður um allt og kallaði: Ásbjörn missti tönn, Ásbjörn missti tönn..... Auðvitað setti hann tönnina undir kodda og Tannálfurinn sótti hana meðan hann svaf og borgaði honum fyrir. Nú er bara beðið eftir að næsta tönn fari, en hún er orðin laf laus.

Helgin hjá okkur er búin að vera mjög fín.
Á föstudaginn vorum við að hjálpa einum íslending að flytja, eða tæma gáminn sinn. Ég var með harðsperrur alla helgina Skömmustulegur, sem segir mér það að vöðvarnir eru búnir að fá alltof mikla hvíld!!

Strákunum var boðið í mat til Hrafns vinar þeirra á föstudagskvöldið, það var rosa sport. Og ég fékk sko að heyra það alla leiðina til Hrafns að ég ætti síðan að fara heim, takk fyrir það Glottandi.

Ég skellti mér síðan í bíó um kvöldið með Möggu Lukku og Sólveigu. Mjög góð mynd sem við sáum. Samt frekar fyndið hvað bíósalurinn er lítill hérna miðað við íbúafjölda!! Bíóhöllin á Skaganum er stærri!!!
Síðan skelltum við okkur á kaffihús í smá stund.

Á laugardag heimsóttu strákarnir Hörpu og síðan kom Harpa til okkar í pössun og gisti hjá okkur. Þau léku sér mjög vel allan daginn en með smá pústum inná milli sem ég held að sé bara mjög eðlilegt Glottandi. En ég vissi varla af þeim og þurfti stundum að kíkja inní herbergi til að ath. hvort þau væru ekki örugglega þarna ennþá.

Binni kíkti til Horsens á laugardag. Þar var Klakamót (Fótboltamót íslendingafélaga í Dk.) Þar var víst mikið grín og mikið gaman Brosandi.

Á sunnudaginn komu Jón Gunnar og Steinunn til okkar og voru að fara í flug rétt áðan. Það var æðislega gaman að fá þau í heimsókn og strákarnir voru alveg með stjörnur í augunum yfir þeim Brosandi.

Í gær fóru strákarnir í "íþróttaskóla" eða íslendingafélagið leigir út íþróttasal og þar koma börnin saman og hlaupa og klifra og hoppa og allt mögulegt og þar var víst brjálað fjör. Þannig að nú eru mánudagar líka orðnir uppáhalds dagar!! Glottandi

Já!! Þetta var semsagt skýrsla síðustu daga Hlæjandi.

Ég ætla að vera svolítið "skemmtileg" núna og skrifa aðeins um skólann!! Ég skal samt reyna að missa mig ekki!!!

Það byrjuðu 3 nýjir nemendur í síðustu viku og einn af þeim er íslensk stelpa. Við Jóna hittum hana fyrst í gær og vorum búnar að kvíða því hverju við ættum að svara ef hún myndi spyrja okkur útí skólann!! En við ákváðum að segja henni bara sannleikann (en ekki hvað?) Stelpan sagðist reyndar hafa heyrt ýmislegt um skólann og var ráðlagt að fara ekki í hann en ákvað samt að prófa. Þessar tvær sem byrjuðu með henni höfðu ekki mætt síðustu daga og því var hún bara ein og var bara látin væblast þarna um skólann og fékk enga kennslu!! Hún var búin að æfa einu sinni handsnyrtingu og í gær var hún látin taka tvo kúnna í handsnyrtingu. En í rauninni á hún ekki að byrja taka kúnna fyrr en eftir 5 vikur!!! Því þessar 5 vikur eiga að fara í að æfa meðhöndlanir og fá bóklega kennslu, en henni var bara sagt að lesa heima!!!! Ég á bara ekki til orð yfir þessu. Og greyið stelpan var hálf miður sín yfir þessu (þ.e.a.s. þessari kennsluaðferð). Það er spurning hvort hún mæti aftur?? Hana langaði til að ganga út í gærmorgun.

Svo er það annað sem pirrar mig Öskrandi og ég bara verð að deila með ykkur.
Nú eru kennararnir farnir að taka kúnna líka. Og þær segja að það sé gott, því þá geta þær unnið við hliðiná okkur og við séð hvernig þær vinna. EN... við erum nemendur og okkur vantar stundum aðstoð og ef kennarinn er kannski að nudda verðum við að bíða í 5-50 mín. eftir aðstoð!! Og svo á miðvikudaginn síðasta var ég með meðhöndlun með einum kennaranum, við vorum með vinkonur. Mig vantaði aðstoð til að vera viss á húðtýpu kúnnans, svo ég myndi örugglega nota réttar vörur á hana. Kennarinn gat ekki hjálpað mér (hún sat við hliðiná mér), heldur sendi mig niður til að finna gestakennara sem var í skólanum þennan dag og átti að fá hana til að hjálpa mér!! Það var eins og kennarinn væri í hálfgerði samkeppni við mig og varð að vera á undan mér að klára meðhöndlunina!!! Og við vorum ekki einu sinni í tímaþröng.

Og eitt að lokum: Við Jóna erum búnar að vera í skólanum í 6 mánuði. Kennararnir þekkja ekki ennþá nöfnin okkar og rugla okkur ennþá saman (þær eru tvær sem kenna okkur). Gestakennarar og skólastjórinn þekkja okkur í sundur og muna hvað við heitum þó það líði margar vikur á milli þar til við hittumst. Og við erum örugglega búnar að læra 20 ný nöfn síðan við byrjuðum í skólanum og við getum þekkt fólk í sundur Öskrandi. Ég verð bara að segja að ég er farin að verða hálf móðguð yfir þessu. Mér finnst þetta vanvirðing. Arrggg og garg...

Jæja nú er ég búin að pústa aðeins Skömmustulegur.

Já best að fara að hætta þessu bulli. Ég er fríi í skólanum í dag. Fer til læknis á eftir, alla leið til Aabenraa í forskoðun v/gallsteinaaðgerðar, en ég verð síðan að bíða í 2 mánuði eftir að komast í sjálfa aðgerðina.
Síðan er körfuboltaæfing í kvöld, ó my god... harðsperrur í vændum!!!

Bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Uppáhalds dagar!!

09. september 2007 klukkan 19:01
Nú er Ásbjörn búinn að eignast uppáhalds daga!! Það eru þriðjudagar og fimmtudagar og ástæðan fyrir því er að þá er íslenskukennsla í skólanum. Hann er búinn að fá skólabók í ísl. og hefur hann hana alltaf við höndina. Honum finnst svo gaman að læra. Hann er búinn með nokkrar bækur sem heita Geitungurinn og þessi kennslubók er í svipuðum dúr. Það er síðan óskandi að hann haldi áhuganum á skólabókunum áfram Brosandi. Ég keypti lesbók og vinnubók á íslandi um jólin og ætti eiginlega að drífa mig í að skoða þær með honum. Við erum reyndar aðeins búin að flétta í gegnum þær, en ekkert að viti.

Síðasta vika var ansi stutt hjá mér. Ég fór bara í skólann á miðvikudag og fimmtudag, en samt nenni ég varla að byrja á nýrri viku Óákveðinn, ég er eitthvað óeðlilega löt þessa dagana eða vikurnar. Verð að fara að rífa mig upp á rassgatinu og gera eitthvað áður en ég leggst í þunglyndi. Það fer að opna ný líkamsræktarstöð hér í bæ og spurning að skella sér þangað í spinning eða eitthvað álíka.

Föstudagurinn síðasti byrjaði með leti = kaffi og tölvan í alltof langan tíma. En svo um hádegi drattaðist ég út að hjóla, kíkti á Dagmar og við hjóluðum síðan saman útí bæ og kíktum í búðir. Seinnipartinn pössuðum við Örn, það er alltaf gaman þegar hann kemur til okkar Brosandi.

Á laugardaginn var haustfagnaður hjá Íslendingafélaginu. Um daginn var grill og fínerí fyrir fjölskyldurnar og kynning á félaginu og leiktæki fyrir börnin. Það var voða gaman. Svo keyptum við fullt af íslensku nammi, eiginlega alltof mikið!!
Við vorum þarna í dágóðan tíma og seinnipartinn hjólaði ég aftur heim með strákana. Jóhann Ingi blaðraði náttúrulega ALLA leiðina og þegar við vorum alveg að verða komin heim var ég farin að svara honum með: já er það, já okey og eitthvað á þá leiðina. Allt í einu spyr hann mig: Ertu að hlusta á það sem ég er að segja? Og ég svara játandi, auðvitað er ég að hlusta!!! Þá segir hann: Hvað var ég að segja??? Ég: (kjaftstopp) Ummmm.... HA??? Já, hvað var ég að segja?? Æææææ.... ég veit það ekki Skömmustulegur !!!! 
Börnin læra greinilega það sem fyrir þeim er haft!!! Ég á það til að spyrja strákana að þessu þegar ég er búin að vera segja eitthvað við þá og fékk þetta þokkalega í hausinn þarna Skömmustulegur, hehe..

Á laugardagskvöld hélt haustfagnaðurinn áfram. Þá var barinn opinn og skemmtiatriði, DJ og dansað. Mjög gaman. Við Dagmar kíktum síðan aðeins í bæinn og inná nokkra skemmtistaði en það var ekkert sérstaklega gaman á þeim, eða við bara ekki í rétta gírnum?? 
Ég var reyndar ekki komin heim fyrr en um kl. 4 því ég LABBAÐI Öskrandi, það kom bara enginn Taxi og ég nennti ekki að bíða lengur. Ég er farin að halda að það séu álög á stígvélunum sem ég var í, ég fæ aldrei Taxa þegar ég er í þeim. Spurning um að fara splæsa í ný??? Glottandi

Dagurinn í dag var líka letidagur. Við Jóhann Ingi fórum reyndar í göngutúr til Alexander vinar hans og vorum svo heppin að lenda þar í vöffluveislu Brosandi, namminamm...
Og sunnudagsmaturinn var borðaður á Mc´donalds með ís í eftirrétt.

Það er kannski ekkert skrítið að ég sé að drepast úr leti miðað við lifnaðinn á mér Skömmustulegur

Jæja nú verð ég að hætta, er að fara að horfa á imbann Hlæjandi.

Mojn....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan