Haustveður í Baunalandi.
Það var nóg að gera hjá okkur um helgina. Á laugardag fórum við til Þýskalands og Elsa kom með okkur. Og við versluðum alveg helling :o)
Ásbjörn var í pössun hjá Svan á meðan og Jóhann Ingi kom með okkur og hélt okkur á snakkinu ALLAN tímann. Það er alveg ótrúlegt hvað barnið getur talað mikið
Á sunnudaginn fórum við í afmælisveislu til Möggu Lukku og átum á okkur gat og rúlluðum svo til Svans og Elsu því þar var okkur boðið í mat og eftirrétt og eftir það ultum við eins og tunnur heim
Í gær byrjaði Binni í skólanum. Hann er reyndar ekki enn kominn með stundatöflu!!! En fær hana örugglega í lok vikunnar eða byrjun næstu viku!!! Frekar fyndið!
Hann fer bara um á vespunni, þvílíkur munur fyrir hann. Hann er alltaf að ýja að mér að ég fari að nota hana líka en ætli ég geri það ekki bara í myrkri!!! Ég fékk nefnilega svo skemmtileg skot á mig þegar ég prófaði í fyrsta skiptið.
Binni, Svanur og Jóhann Ingi komu með mér út til að horfa á (allir tilbúnir í gríngírnum). Binni sagði mér að halda bensíngjöfinni í botni og handbremsunni inni meðan ég startaði hjólinu og ég gerði það. Svo var búið að starta hjólinu og enn hélt ég bensíngjöfinni í botni og sem betur fer hélt ég handbremsunni ennþá inni þar til mér var sagt að SLAKA á bensíngjöfinni (Ó!!) og svo fór ég hægt og rólega af stað og tók smá hring. Þegar ég kom aftur byrjaði skothríðin: Það hreyfist varla á þér hárið, þú ferð svo hægt (so what!!) og Jóhann Ingi sagði: Hún kemst ekki hraðar því hún er svo þung!!
Já þannig að næsta ferð verður farin í skjóli nætur, brumm,brummm....
Ég held ég verði að fræða son minn aðeins um það hvernig maður svarar kvenfólki, svo hann gangi kannski einhverntímann út
Ásbjörn átti að byrja í íslenskukennslu í skólanum í dag en missir því miður af fyrsta tímanum, en hann fer í ísl. tvisvar í viku og er mjög spenntur fyrir því. Honum fannst þetta reyndar algjör óþarfi fyrst þegar ég sagði honum frá þessu, því hann kynni alveg íslensku! En svo sagði ég honum að hann myndi læra að skrifa og tala rétta íslensku og þá kviknaði á perunni
Ég er að láta mig dreyma um að fara að skúra!! Það er bara verst að það gerist ekkert meðan manni dreymir það. Þetta er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri og ég mikla það svo fyrir mér að í huganum mætti halda að ég byggi í íþróttahúsi en ekki í 100 fm. íbúð.
Jæja best að fara að vakna frá þessum ljóta draumi og láta hann rætast
Bless í bili.