Nokkrar afmælismyndir komnar inn.

10. júní 2007 klukkan 21:45
Ég hafði mig í að setja inn nokkrar myndir, en það koma fleiri inn í vikunni. Ég gerði tvær tilraunir til að setja inn FLEIRI myndir en það datt allt út og ég hef ekki meiri þolinmæði Öskrandiarrrggg. Þetta eru myndir úr afmælinu hans Ásbjörns sem við héldum í Katrinelund í dag. Veðrið var yndislegt, steikjandi hiti reyndar en ég ætla samt ekki að kvarta undan honum, ég er búin að bíða eftir þessu veðri síðan á jólum!!!
Við grilluðum pylsur og svo voru kökur í eftirrétt. Einar og Dagmar voru svo sniðug að koma með buslulaug með sér, þannig að krakkarnir nutu þess að sulla og kæla sig. Dagurinn var alveg yndislegur í alla staði Brosandi.

Á föstudaginn fór Ásbjörn með ís og köku í leikskólann. Binni sótti þá snemma þennan daginn og fór með þá útí bæ því þar voru markaðsdagar. Það fór lítil lest um bæinn og hestvagn og svo voru þar líka hoppukastalar og trúðar. Þeir hittu einn voða skemmtilegan trúð sem fékk Ásbjörn til að hjálpa sér við að gera einhverjar kúnstir, hann var voða glaður með það. Þegar þeir komu aftur heim fékk hann loksins afmælisgjöfina sína, búinn að bíða allan daginn eftir henni. Hann var rosa glaður, fékk tölvuspil og leiki og Jóhann Ingi fékk hlaupahjól og er búinn að svífa um á bleiku skýji síðan. Hann segir að hann fékk nýtt hlaupahjól sem er ekki með hjálparadekkjum!! Greyið lillinn er svo vanur að fá notað eftir bróðir sinn og aðra en núna fékk hann nýtt og nýtur þess að segja að Ásbjörn á gamalt hlaupahjól!!!  Svo átti hann hlaupahjól með þremur dekkjum (það eru hjálparadekkin!!) en þetta er með tveimur. Þannig að þeir fengu báðir það sem þeir óskuðu sér Brosandi.

Á laugardaginn komu Jóna og Kobbi til okkar (foreldrar Binna). Þau komu með Norrænu í gær og keyrðu svo hingað til okkar, búið að vera ansi langt ferðalag á þeim. Eftir matinn í gær skelltum við okkur í göngutúr, Ásbjörn sýndi þeim skólann sinn og svo sýndu bræðurnir þeim leikskólann sinn. Svo í dag var þeim dembt beint í action = barnaafmæli, hehe...  þetta var nú ekkert svaka dæmi þetta afmæli, við vissum ekki af börnunum, þau voru bara á fullu að leika eða aðallega að sulla allan daginn Brosandi. Vikan verður róleg, við Binni erum í skólanum en við vorum að spá í að skreppa til Kiel á föstudaginn, ég held við séum innan við 2 klst. að keyra þangað.

Ég læt þetta duga í bili, langur dagur í skólanum á morgun þannig að best að drífa sig í draumalandið.

Ég lofa myndum í vikunni, þ.e.a.s. ef tæknin klikkar ekki!!!!

Knús og kremjur...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Hefur hárlitur áhrif á heilastarfsemi???

03. júní 2007 klukkan 19:36
Ég fer í klippingu næsta föstudag og var að spá í að lýsa aðeins hárið á mér, vera svolítið sumarleg Glottandi. Ég er komin með svooo... sítt hár, hef ekki verið með það svona sítt í mörg ár... en það lagast á föstudaginn Hlæjandi. Svo þarf að fara að raka strákana aftur, þeir eru að verða eins og síðhærðir broddgeltir, hárið á þeim vex beint uppí loftið.

Fyrri part vikunnar RIGNDI í orðsins fyllstu merkingu með þrumum og eldingum. Mér finnast þrumur og eldingar svo spúkí, var meira að segja hálf illa við að sofa ekki í sama herbergi og strákarnir!! Þetta er svo yfir náttúrulegt og enginn getur stjórnað þessu (þrumunum og því) en innst inni finnst mér pínu kósý að heyra rigninguna berja á rúðurnar og þrumurnar glamra inná milli.  En seinnipart vikunnar og um helgina er búið að vera fínasta veður Svalur.

Á síðasta fimmtudag fór ég með Ásbjörn og Jóhann Inga að skoða skóladagvistunina sem Ásbjörn byrjar í 18 júní nk.  Skólinn var þvílíkt völundarhús, við fórum nefnilega inn í kolvitlausan enda og þurftum að spyrjast til vegar til að finna bekkinn hans, en það "hafðist" (eða það héldum við). Settumst niður með dagfóstrunum og öðrum foreldrum, strákarnir léku sér og ég drakk kaffi og spjallaði við fóstruna örugglega hátt í klukkutíma. Svo fór ég að spyrja útí bekkjarfélaga hans... og þá kom í ljós að við vorum í vitlausri stofu!!!! ÚPPS... (og ég segji frá þessu).  Fóstran fylgdi okkur svo í réttu stofuna og þar tóku á móti okkur hans réttu fóstrur... sem allir eru karlmenn. Mér fannst þetta helv... vandræðalegt, EN þetta er víst bara týbíkt ég svo það er ekkert við þessu að gera Skömmustulegur.  Við stoppuðum dágóða stund í skólastofunni hans og ég spjallaði við einn fóstrann og drakk annan kaffibolla! Svo fórum við út að skoða leiksvæðið og þar léku þeir í góðan tíma, fannst það mjög gaman. Það eru samt einhverjir bakþankar í Ásbirni varðandi skólann en ég held það sé aðallega kvíði við að skilja við vini sína í leikskólanum. En auðvitað geta þeir haldið áfram að hittast utan skólatíma Brosandi.

Á laugardaginn pössuðum við Alexander og Evu Karen í smá stund. Ég fékk að fara í smá litlubarna-mömmuleik Brosandi. Eva Karen er 7 mánaða og það var voða gaman að fá smá flashback. En ég myndi samt ekki nenna að eiga annað barn. Það er fínt að lánað öðru hvoru.  Eftir að mamma þeirra kom aftur fórum við öll saman í Katrinelund með nesti með okkur. Svo seinni partinn fóru strákarnir í pössun heim til þeirra og við Binni fórum til Þýskalands til að kaupa afmælisgjöf fyrir Ásbjörn og versla smá inn. Drengurinn verður 6 ára næsta föstudag og ætlar að halda uppá það á sunnudaginn.
Í morgun fór ég með strákana í heimsókn til Alexanders og co., ég línuskautaði og strákarnir skiptust á að hjóla og hlaupahjóla (þeir eru farnir að rífast um hlaupahjólið, J.I á eitt með þremur hjólum en honum finnst Ásbjörns hjól meira spennandi, kemst hraðar á því.) Þeir léku þar bæði inni og úti og svo fórum við í smá göngutúr og keyptum ís og komum við á róló. Svo... fór ég útí búð og keypti æfingarbekk!!! Bekkurinn er aðallega hannaður fyrir magaæfingar en það er líka hægt að gera allskonar lóðaræfingar á honum, það fylgdu líka lóð með honum. Þannig að nú er ENGIN afsökun fyrir að hafa ekki tíma eða komast ekki í ræktina!!! Ég gerði nokkrar magaæfingar áðan.... fúff.... (þarf nokkuð að útskýra það betur?), ég veit að vöðvarnir eru þarna einhversstaðar... bara málið að kafa eftir þeim og finna þá.

Þessi vika verður stutt hjá mér Hlæjandi. Á þriðjudag er ég í skólanum til kl.12 því þá er hálfur frídagur sem heitir Grundlovsdag og svo er ég í fríi á fimmtudag og föstudag og þannig verður það út júní, jííí....  Ef einhver vill koma langa helgi í heimsókn, þá er ég heima Brosandi.

Næsta laugardag koma foreldrar hans Binna í heimsókn. Við teljum niður dagana Hlæjandi, hlökkum svoo.. til að fá þau til okkar.

En nú er ég orðin tóm!!! Spurning hvort það sé hárliturinn eða??? Kannski er bara komið nóg af bráðgáfuðu bulli Hlæjandi.

ADIOS..... Koss
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Íþróttaálfarnir...

28. maí 2007 klukkan 19:43
Ótrúlegt en satt, þá vorum við familían að lyfta lóðum saman áðan!!! Og það uppí rúmi... frekar furðuleg bólleikfimi!!! Hehe... Við Binni byrjuðum og skiptumst á lóðunum og svo fannst strákunum þetta svo spennandi og vildu prófa líka, en þetta var frekar þungt fyrir þá. En við gerðum allavega slatta af æfingum og magaæfingum og gláptum á mynd í sjónvarpinu í leiðinni (tvær flugur í einu höggi). Og þetta tók bara vel á, sérstaklega magaæfingarnar. Við ákváðum að setja okkur það markmið að æfa okkur 3x í viku og hina dagana fer ég út að labba/(skokka) eða línuskauta. Ég ætlaði nú að vera löngu byrjuð að þessu, en.... lazy thing.

Annars er nú ekki mikið að frétta. Jóhann Ingi fékk hlaupabólu í síðustu viku með þremur andvökunóttum Óákveðinn. Það var alveg hrikalegt að sjá barnið, alveg gjörsamlega þakinn í bólum og vildi stanslaust láta bera á sig kláðakremið. Þó það sé ljótt að segja það þá fékk ég hroll þegar ég kom við hann Skömmustulegur, greyið barnið, en ég höndlaði þetta nú alveg. En hann er allur að koma til og bólunum fer fækkandi. Á morgun fer hann í pössun til Láru, hún var svo elskuleg að bjóðast til að passa hann. Tristan strákurinn hennar er líka með hlaupabólu svo það verður fjör á þeim bænum Brosandi. Binni fer í fyrsta prófið á morgun og er því búinn að vera í skólanum að læra alla helgina.

Ég er búin að vera að drepast úr leti undanfarnar vikur og alveg sérstaklega síðustu daga. Er búin að hanga heima og láta mér leiðast. Mér tókst samt að hafa mig í að þrífa íbúðina. Það mætti halda að það hafi ekki verið þrifið hér í marga mánuði. Þetta var eins og í draugahúsi á sumum stöðum í íbúðinni, þ.e.a.s. það voru köngulóavefir út um allt. Ég held að köngulærnar feli sig á meðan maður þurrkar vefina í burtu og blóta manni í sand og ösku á meðan og svo þegar maður setur kústinn aftur inní skáp byrja þær aftur að spinna. Frekar þreytandi húsdýr!!!!

Í gærkvöldi buðum við Dagmar, Einari og Sólveigu í mat. Vorum með íslenskt lambalæri, ummm.. það var hrikalega gott. Og kvöldið var voða kósý. Svo í dag bakaði ég kryddbrauð og pönnsur og Magga Lukka kíkti í kaffi. Ég spáði mikið í því hvort ég ætti að leggja mig... eða fara að baka!!! Já svona mikið er ég búin að vera löt Óákveðinn.  Svo langar mig alveg hrikalega í eitthvað sætt núna en á ekkert nammi - sem betur fer. En það er rosa fínt að við erum saman í átaki, þá er maður allavega ekkert að freistast. Ég stefni á að missa 4 kg. áður en ég fer til Ísl. Og á alveg að geta það .

Á næsta fimmtudag fer ég með Ásbjörn í skólann til að skoða aðstæður í skóladagvistuninni. Ég nefndi þetta við hann í síðustu viku og hann var voða spenntur. Við erum búin að fá blöð um skólann og allt það og líka nöfnin á öllum krökkunum sem verða með honum í bekk. En hann verður með einum ísl. strák í bekk sem hann þekkir ekki og svo er hann líka með einum strák af deildinni sinni úr leikskólanum líka í bekk. Þetta verður spennandi tímamót fyrir hann Brosandi.

En jæja í bili....

bless, bless..........
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Tívolí, tívolí, tívolí lí lí...

20. maí 2007 klukkan 19:07

Þetta er nú búið að vera ansi skemmtileg helgi.  Á fimmtudaginn kom Binni með þá snilldar hugmynd að skreppa til Óðinsvé og heimsækja Palla og Rósu. Þar fengum við nýbakaða köku og skinkusnúða og svo var okkur boðið í mat til þeirra líka. Við komum ekki heim fyrr en um miðnætti, en það var í góðu lagi... frí á föstudeginum Glottandi. Á föstudaginn ætlaði ég "aðeins" að kíkja í bæinn en þegar ég ætla mér aðeins að skreppa eitthvert þá getur það tekið nokkra klukkutíma!!  Ég kíkti í heimsókn í gömlu vinnuna og var þar til kl. 19,30!!!  Og fór ekki í eina einustu búð!!!  Liðið sat bara inná skrifstofu að sötra rauðvín og ég stóðst ekki freistinguna og fékk mér smávegis með þeim. Það var svo gaman að koma aftur í vinnuna!  Á meðan ég var í skrepputúrnum mínum fór Binni með strákana í hoppukastala og svo á Mc´donalds, þannig að þeim leiddist ekkert þó ég hafi ekki verið nálægt... og reitt af mér brandarana Hlæjandi.
Á laugardaginn var svo loksins Damefrokost. Við hittumst fyrst á loftinu hjá ísl.félaginu kl.15,30 og fórum svo á Damefrokost kl.17. Þar voru 1200 konur saman komnar til að drekka og skemmta sér. Það er alltaf eitthvert hattaþema í gangi og í ár var sportþema. Ég, Sólveig og Dagmar vorum með  bleik sólder og legghlífar aðrar með svitabönd o.þ.h. og svo voru aðrar kellur þarna með heilu fótboltavellina á hausnum og ein með hótel á hausnum (í svipaðri stærð og piparkökuhúsin í Kringlunni um jólin) og svo voru allskonar múnderingar á hausunum á þeim!!  Þarna var matur og vín í boði. Mér fannst þetta varla matur! Það eina sem ég gat borðað var brauð og ávextir en svo var hlaðið á okkur bjórkönnum, hvítvíni og Rauðvíni. Svo var hljómsveit þarna og dansað uppá stólum allt kvöldið. Mjög skemmtileg upplifun Brosandi. Uppúr miðnætti kíktu ég og Sólveig aðeins í bæinn. Hittum þar Jónu og fleiri stelpur en við vorum alveg búnar á því og komnar heim kl.1.... og þá kíkti Binni aðeins út. Fyrr um kvöldið voru Binni og strákarnir á strákakvöldi heima hjá Palla og Stínu (foreldrar eins úr leikskólanum) og þar voru líka Tristan og Gummi pabbi hans. Þeir grilluðu saman og höfðu það kósý, kerlingalausir!!

Í dag kíktum við svo til Palla og Stínu og þar voru líka Gummi og Lára og sátum bara úti í sólinni, sumir þunnir...aðrir ekki!! (ekki ég!!) Og við grilluðum og fengum ís í eftirrétt og fórum svo öll saman í tívolí. Jííí... það var svo gaman. Ég hefði alveg viljað fara í fleiri tæki og sum tækin aftur... en týmdi því ekki Óákveðinn. Gummi og Lára pössuðu strákana meðan við Binni skelltum okkur í eitt tæki sem ég vildi ekki leyfa strákunum að fara í... oooo.. þetta var svo gaman. Svo fór ég með Jóhann Inga í eitt tæki sem ég hefði betur átt að sleppa!!!! Ég hélt að líftóran myndi kremjast úr barninu, það var einn strákur með okkur í tækinu og hann flaug alltaf á Jóhann og gat engan veginn haldið sér greyið, þó hann hafi hamast við það allan tímann. Svo hélt ég að þetta væri að verða búið, en nei, nei, síðast dagurinn og tvöfaldur tími í öllum tækjum!!! Þetta er örugglega í fyrsta skiptið sem ég vona að tíminn sé liðinn í svona tæki!! Annars er ég alltaf til í extra tíma. En honum varð allavega ekkert meint af þessu. Svo fór Binni með strákana og Tristan í draugahús, þeir vildu ENDILEGA fara í það og fóru allir að gráta þar inni!! Svo var svo fyndið í kvöld þegar Ásbjörn spurði Jóhann hvort hann hafi verið hræddur í draugahúsinu, það kom þessi svaka svipur á Jóhann og hann sagði: Jahá ég var sko hræddur og þá sagði Ásbjörn: Jááá! ég líka!!!
Við komum heim um kvöldmatarleytið og þá var borðað, baðað og hent strákunum í rúmið... eða næstum því, þeir eru ennþá að koma fram!!!

Jamm og jæja... svona var helgin okkar!! Og svo er bara spáð bonó blíðu alla vikuna. Mig hlakkar til en Binna hryllir við því, hann er rauð glóandi eftir þennan dag: Bleika húsmóðirin!!!! (Híhí)

Best að fara koma strákunum í draumalandið, vona bara að þeir fái ekki martröð eftir draugahúsið Hissa.

Bæbæbæbæb......


Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Langttt...frí....

17. maí 2007 klukkan 09:52

Þetta er eiginlega of gott til að vera satt!! Ég er í 4 daga fríi!!! Það voru svo margar búnar að skrifa sig í frí í skólanum á föstudag en við Jóna vorum svo seinar til skrá okkur og því búið að fullbóka á okkur þannig að við ákváðum bara að mæta en... svo fréttum við það á mánudaginn að kennarinn yrði líka í fríi!!! Við vorum þrjár sem ætluðum að mæta og ein af okkur byrjaði í náminu í september og við áttum bara að leita til hennar ef okkur vantaði eitthvað en við sögðum bara nei takk, við ætluðum ekki að mæta ef það yrði enginn kennari og við fengum það í gegn.  Kennarinn kann ekki að svara fyrir sig ef maður baunar einhverju á hana, meira segja ég get gert hana kjaftstopp!!! Venjulega kemur allt öfugt út úr mér þegar ég ætla að tjá mig um eh. sem ég er óánægð með og hugsa svo alltaf eftir á af hverju ég sagði ekki hitt og þetta í stað þess sem ég sagði!! En ég þarf þess ekki þegar ég tala við kennarann!!! Glottandi.
Ég er eiginlega ekkert búin að vera heima hjá mér þessa viku og hefur því Binni hlotið titilinn "Húsmóðir heimilisins" (eins gott að hann lesi þetta ekki). Hann er búinn að vera heima með Ásbirni alla vikuna og séð um eldamennsku og bakstur. Á þriðjudaginn gerði hann rosa góðan kjúklingarétt og í gær var hann og Ásbjörn búnir að baka speltbrauð. Við erum nefnilega að breyta mataræðinu og það hefur gengið mjög vel Brosandi, borðum bara hollt og svo er sukkdagur á laugardögum.

Ásbjörn er orðinn hress af hlaupabólunni og er farinn að fara út, fer samt ekki í leikskólann fyrr en á mánudaginn. Við höfum ekki fundið neina bólu á Inga pinga og vonumst til að hann bíði með að fá þetta fram yfir prófin, víst hann gat ekki smitast fyrr!!!!

Svo ég vaði nú úr einu í annað!!! Þá var ég að horfa á tærnar á mér!!! Yes... og dást af þeim. Sólveig var nefnilega að sjæna þær á sunnudaginn og hún er algjör snillingur. Nöglin á annarri stóru tánni drapst fyrir jólin og þegar hún óx aftur út var hún þvílíkt bækluð, með "landslagi" og öllu. Sólveig er búin að pússa "landslagið"  niður og svo bjó hún til nögl framan á hana þannig að hún lítur alveg eins út og hin stóra táin. Ótrúlegt hvað hægt er að gera!!! Svo gerði hún Franskt pedicure á þær Hlæjandi.

Um helgina er Byfest í Sönderborg. Þá er hellingur að gerast í bænum og það er tívolí og svo auðvitað Damefrokost á laugardaginn. Eins gott að það rigni ekki... en það er búin að vera skýfall hér síðustu daga Óákveðinn
En okkur ætti allavega ekki að leiðast!!! Jibbí... hlakka svo til að fara í tívolííí... og auðvitað á djammið líka Brosandi.

Góða helgi.....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Fjárfesti í lóðum...

13. maí 2007 klukkan 15:42
í Deutschlandi. Tvær þriggja hektara og fékk eina geit í kaupbæti!!!  Nei þetta hljómar ekki mjög spennandi. En ég keypti mér samt lóð þannig að nú get ég farið að gera æfingar heima hjá mér Brosandi. Og það á sko að fara taka á því!!! Og breyta um mataræði í leiðinni, ég hef einu sinni getað þetta og ætti því að geta það aftur Svalur. Ég er komin með algjöran viðbjóð á sjálfri mér.
En nóg um það...

Ásbjörn er kominn í hlutverk ættbálkahöfðingja hér á heimilinu.  Hann er þakinn rauðum bólum og með hvíta skelli hér og þar um líkamann (kláðastillandi hvítur vökvi!), þannig að hann lítur út eins og villimaður. En hann er samt búinn að vera mjög hress, er bara búinn að vera með nokkrar kommur í hita.
Í dag komu Tristan og Hrafn í heimsókn til hans þannig að það er búið að vera brjálað stuð á þessum bæ og Ásbjörn búinn að vera alveg í essinu sínu yfir að hafa fengið félagsskap frá öðrum en bróður sínum!!

Við Jóhann Ingi skelltum okkur í afmælisveislu, fengum rosa fínar kökur (góð byrjun á aðhaldinu Skömmustulegur) og vorum úti í góða veðrinu. Svo fór ég heim og skipti við Binna svo hann fengi líka kökur!!

Í gær fóru ég og Sólveig vinkona mín til Þýskalands. Versluðum í matinn og kíktum í fatabúðir. Ég keypti mér peysu og tvenna sandala, nýbúin að segja að ég fyndi mér aldrei neitt þegar ég færi í búðir!!!  Það fóru nokkrir klukkutímar í þessa ferð og þegar við komum heim var Binni búinn að elda fyrir okkur rosa góðar kótilettur og svo horfðum við á Júróvision með öðru auganu og sötruðum rauðvín.  Rosa fínn dagur Hlæjandi.

Það er orðið svolítið fyndið að hlusta á strákana tala. Þeir eru farnir að blanda saman dönsku og íslensku. Stundum gleymir Jóhann Ingi að "vaska" á sér hendurnar og svo fór hann í "bussen" með leikskólanum (strætó) og svo er þeim stundum illt í beininu (fætinum/ben) og svo þegar þeir biðja um að fá eitthvað lánað segja þeir: má ég lána dótið þitt!! (må jeg låne /má ég fá lánað), í stað þess að segja "ég veit það" þá segja þeir "það veit ég" (det vite jeg (godt)) (ég er nú ekki góð í danskri stafsetningu þannig að ég skrifa þetta örugglega vitlaust). Ég reyni að vera dugleg að leiðrétta þá en þarf samt stundum að hafa fyrir því að tala sjálf rétt/eða vera ekki að sletta málunum saman.  Ásbjörn fær líka íslensku- kennslu í skólanum þegar hann byrjar þar, 1x-2x í viku og ég er mjög ánægð með það.

Nú er ég að fara að skreppa til Sólveigar, þessi elska ætlar að lagfæra á mér tærnar!!! Ehemmm.. eins gott að ég skelli mér í smá fótabað fyrst Skömmustulegur.  Hún setti gel á neglurnar á mér um daginn, á stelpukvöldinu hjá Dagmar. Þetta er svona franskt pedicure, rosa flott Glottandi og nú er kominn tími á lagfæringu.

Hef þetta ekki lengra í bili....

Ps. Allar mæður..... til hamingju með daginn!!!!!!!

Knúsi knús...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Ilmurinn úr eldhúsinu var svo lokkandi.....

10. maí 2007 klukkan 18:29
Nú er Ásbjörn orðinn veikur Óákveðinn. Kvartaði um í maganum í gær og var kominn með hita. En ég er skíthrædd um að hann sé með hlaupabólu!!!  Hann er ekki með margar bólur, það er hægt að telja þær!! Og það er vökvi í þeim. En það hlýtur að koma í ljós, þær hljóta að fjölga sér ef þetta er hlaupabóla.  Binni hélt fyrirlestur í skólanum í morgun sem var undirbúningur fyrir dönskupróf, það gekk mjög vel hjá karlinum og Gunni snillingur bjargaði okkur með því að passa Ásbjörn á meðan.  Síðan þegar ég og Jóhann Ingi komum heim úr skólanum tók á móti okkur þessi líka góði ilmur... Ásbjörn og Binni voru búnir að baka skonsur sem biðu okkar á borðinu ásamt öðru bakaríis gúmmulaði, ekki amalegt að fá svona mótttökur Hlæjandi. Og auðvitað át ég yfir mig Skömmustulegur. Ég er nú farin að reyna að hafa með mér hollt nesti í skólann, stundum kjúklingasalat en venjulega brauð, ég er komin með þvílíkt ógeð af brauði. En til tilbreytingar hef ég verið að fá mér rúgbrauð með kornum í, með kotasælu og grænmeti. Mér kvíður alltaf jafn mikið fyrir að byrja borða það en þetta bragðast samt ekkert ógeðslega, hlýtur að vera mjög hollt!!!
Svo er ég líka búin að ákveða að kaupa mér lóð næst þegar ég fer til Þýskalands, sko lyftingarlóð... ekki jörð!!! Þetta gengur ekki lengur, ég sé mig fitna Öskrandi aarrggg...

Nú fer Evróvision alveg að fara byrja... og ég er svo spennt Öskrandi, meikar Ísland það að þessu sinni eða ekki?????? Ó my god, ég ræð ekki við mig!!!!! Höhömm...

Ég hef verið að ræða þessa keppni við nokkra dani og það eru ca. 30-50% af þessu fólki sem veit hvað Evróvision er!!! 
Þeir vita ekki af hverju þeir eru að missa, hehe...

En best að fara setja sig í stellingar, koma strákunum í rúmið og planta mér síðan fyrir framan sjónvarpið Glottandi.

Adios....Farvel...

Ég gleymdi einu!!! Við erum búin að bóka flug heim í sumar.

Binni og Jóhann Ingi koma 25/6 og fara aftur heim 15/8 og ég og Ásbjörn komum 28/6 og förum aftur 31/7, því við byrjum í skólanum á undan Binna!!

En Júróvision er byrjuð og mikið hrikalega eru mörg lög LEIÐINLEG, það er varla að ég nenni að horfa á þetta en langar samt að sjá úrslitin.  Mér finnst íslenska lagið bara með þeim bestu sem ég hef heyrt enn sem komið er en ég heyrði það bara í fyrsta skiptið á síðasta mánudag (þ.e.a.s. ísl. lagið)!!  Og það eru ótrúlega mörg rokklög, fyndið hvað er alltaf reynt að apa upp eftir síðustu sigurvegurum.

En best að reyna klára að hanga yfir þessu gauli....

Bæjó!!
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Fríið búið...

06. maí 2007 klukkan 19:37
Oooo..... Óákveðinn
Það varð nú ekki mikið úr þessu fríi Óákveðinn, en við fengum þó góðan félgsskap. Veðrið var alveg geggjað en við vorum svo mikið inni því Jóhann Ingi var veikur alla helgina.
En á föstudaginn fóru Ásbjörn og Binni í bíó hjá Ísl.félaginu niðrí háskóla og ég fór í bíó um kvöldið (á sama stað!). Sá myndina Kaldaljós og fannst hún mjög góð, svo var líka sýnd Stuðmannamyndin nr.2 en ég nennti ekki að horfa á hana líka.
Á laugardaginn fóru ég og Ásbjörn á línuskauta, það var ekkert smá heitt... fúff... og kíktum við í heimsókn til Ísabellu og co.
Svo kíktu Tristan og foreldrar hans í heimsókn til okkar, þannig að við skemmtum okkur öll voða vel.
Í morgun (sun.) dreif ég mig í að baka, skellti í skúffuköku og bakaði kanelsnúða og fór svo í búðir, það eru opnar búðir fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Seinnipartinn fórum við í lautarferð með Stebba, Árnýju og Móniku Rós með nýbakaðar kræsingar og kaffi en veðrið var bara ekki nógu gott þannig að við stoppuðum ekki eins lengi og venjulega. Og auðvitað gleymdi ég myndavélinni... eina ferðina enn Fýldur. Við ákváðum að hleypa J.I. út í dag, okkur fannst ekki hægt að halda honum lengur inni enda var hann orðinn hitalaus.  Svo var okkur boðið í mat í kvöld til Hjördísar og Ingvars. Fengum steiktan íslenskan fisk, þvílíkt sælgæti. Það er svo langt síðan ég hef fengið fisk og var virkilega farin að sakna hans, danski fiskurinn er óætur og því bara etið kjét á þessum bæ Fýldur.  Strákarnir komust í rabarbarabeðið hjá þeim og fengu því ágætis andlitsleikfimi Brosandi, frekar fyndið.

Nú tekur bara daglega amstrið aftur við Óákveðinn. Ég verð í skólanum til kl. 21 á morgun og gisti því næstu nótt í Fredricia.

Ég er eitthvað voðalega andlaus núna, veit ekkert hverju ég á að ljúga að ykkur!!!

Kveð því bara í bili.... bæjó....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Den store bededag!

03. maí 2007 klukkan 19:46
Jibbíí.... frí í skólanum á morgun Hlæjandi. Það verður alveg yndislegt að fá svona langa helgi. Jóhann Ingi er reyndar kominn með hita en ég vona að hann verði fljótur að hrissta þetta af sér, svo engist hann sundur og saman af hósta Óákveðinn. Ásbjörn er búinn að vera rosalega góður við hann, leyfði honum að fara í tölvuna og teiknaði síðan rosalega flotta mynd fyrir hann með bát og fiskum Brosandi. Bræðrakærleikurinn til staðar þegar á reynir.
Á morgun á að vera bíó hjá íslendingafélaginu, ísl. mynd fyrir börnin um daginn og svo um kvöldið er ísl. mynd fyrir fullorðna fólkið. Spennandi að sjá hvað verður í boði (fyrir utan poppið og ísl. nammið!!)

Ásbjörn er búinn að ákveða að taka Íþróttaálfinn sér til fyrirmyndar og borða bara nammi á laugardögum og ég er að spá í að herma eftir honum! En ég ætla samt ekki að byrja fyrr en á sunnudaginnSkömmustulegur, verð að fara að gera eitthvað í þessum maga mínum!!!

Og svo er auðvitað alltaf stuð í skólanum... samt orðið frekar þreytt...
Þessi fundur með skólastjóranum breyttist nú "aðeins", hún ætlaði að koma og tala við okkur og við máttum segja henni hvað okkur þyki að betur mætti fara þarna. En áður en fundurinn var voru allar búnar að ákveða að segja ekki neitt því þær sögðu að maður fengi þetta allt í hausinn ef maður væri að kvarta! Maður yrði hunsaður og það gæti bitnað á einkununum. Og við Jóna vorum búnar að gera þennan fína kvörtunarlista!!!
En fundurinn fór nú á annan veg!!!
"Drottningin" sjálf mætti á svæðið (eigandinn), og hélt þessa líka klisjukenndu ræðu um hvað sjónvarpsþátturinn væri mikið bull og var að reyna réttlæta allar staðreyndir. Við vorum ekkert spurðar um okkar álit og ekkert spurðar um hverju væri hægt að breyta til að skólinn yrði betri. Í síðustu kaffipásum hefur þessi fundur verið til umræðu og mikil óánægja og nemendur kalla eigandann norn og algjört eitur og fleiri álíka "skemmtilegum" nöfnum. Ég stakk uppá að við myndum allar taka okkur saman og heimta betri kennslu en ég fékk það svar að eigandanum gæti ekki verið meira sama um hvað okkur fyndist og við myndum ekkert hafa uppúr því!!!  Frekar fúlt Óákveðinn.

Og svo ég haldi aðeins áfram í kvörtunardeildinni
þá varð ég svo hundfúl í skólanum í dag að ég hef sjaldan vitað annað eins!!!
Ég skal hlífa ykkur við ritgerðinni, en til að gera langa sögu stutta þá finnst mér alltof mikið álag á okkur, flestar af okkur eru full bókaðar allan daginn og höfum x mikinn tíma til að klára hverja meðhöndlun, og það er eins og það skipti engu máli að við þessar nýju höfum verið þarna á snyrtistofunni í 2 vikur. Við eigum bara að geta klárað á þessum setta tíma og eigum að troða eins mikið af vörum inná kúnnana eins og ómögulegt er!!! Mér finnst þetta oft alltof mikið stress og mér ofbýður við þessari sölumennsku þarna.
Stundum næstum gleymi ég að ég sé í skóla þarna því þetta líkist frekar vinnubúðum.  Og það er ekki það að ég nenni ekki að vinna, ég vil læra hlutina áður en ég fer að vinna við þá. Ég þarf tíma til að læra hlutina svo ég geti gert þá vel. Ég vil ekki vera á milljón bara til að vera á réttum tíma og skila svo verkefninu illa gerðu. Hraðinn kemur með tímanum (vonandi)!!!

En já þetta skólamál er dauðþreytt og ég skrifa ekki meira um það nema það komi eitthvað svaka krassandi... meiri sjónvarpsumræða eða eitthvað álíka.

Jæja best að fara sinna börnunum og njóta llaanngga helgarfrísins Glottandi
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Ég er nú ekki í lagi....

29. apríl 2007 klukkan 20:06
Á föstudagskvöldið fór ég að sofa kl.22:00 og ekki nóg með það, ég var vöknuð kl. 07:18 á laugardagsmorgninum og GAT EKKI sofnað aftur og var komin í bakaríið kl. 8:00, þetta er sko ekki ég!!!! (En kannski nýja ég, hehe... right!!! Glottandi )
Svefnpurkan hann Jóhann Ingi svaf lengst og þegar hann vaknaði sungum við afmælissöng fyrir Binna og gáfum honum gjafir. Svo skelltu strákarnir sér í sund og ég hjólaði útí bæ og kíkti í búðir.
Eftir hádegi fórum við í afmælisveislu til Arnar, það var útiveisla enda fínasta veður (fyrir utan 2 mínútna djók hjá veðurguðunum= rigning).
Krakkarnir léku sér á fullu og við fullorðnu átum á okkur gat Óákveðinn, ég allavega rúllaði heim. Svo var Binni búinn að nefna að við færum út að borða í kvöldmatnum en við höfðum bara ekki pláss fyrir meiri mat, þannig að við ákváðum að geyma það þar til í dag (sunnudag).

Í morgun svaf ég nú aðeins lengur eða til níu. Finnst ykkur ekki gott að vita það??? Mér leið allavega betur þegar ég leit á klukkuna Brosandi. Svo fórum við öll familían að þrífa og nú er allt skínandi hreint.
Eftir hádegi kom Örn í pössun til okkar svo foreldrar hans gætu kíkt á prinsessuna hjá Hafdísi og Óskari. Við kíktum á róló og dúlluðum okkur bara. Ásbjörn var að lesa fyrir hann, hann er svo duglegur að hafa fyrir Erni og finnst það svo gaman en svo hefur hann engan áhuga á bróður sínum, það er svo fyndið að fylgjast með þessu Glottandi.  Seinni partinn ákváðum við svo að skella okkur út að borða en... þá var Ingi Pingi orðinn svo þreyttur og var alveg að sofna að við ákváðum að fara bara á Mc´donalds, þar geta þeir nefnilega leikið sér og hann gat haldist vakandi. Þannig að við verðum bara að fara seinna eitthvað fínna út að borða, og kannski/vonandi bara barnlaus Glottandi.
Ég át svo hrikalega yfir mig á Magga Dóna, fékk mér ís í eftirrétt og alles að ég skellti mér á línuskauta í klukkutíma, aðeins að reyna minnka samviskubitið. Það var rosa hressandi svona rétt fyrir svefninn.

Á morgun verð ég í skólanum frá kl. 9-21, við Jóna ætlum að byrja að vinna upp lengra sumarfrí. Við ætlum að taka 2 auka vikur í frí og getum verið lengur í skólanum á mánudögum og miðvikudögum. Svo ætlum við að gista hjá vini hennar Jónu í Fredricia því við erum bara korter að keyra þangað. Það tekur því ekki að keyra heim á mánudags kvöld og svo aftur í skólann á þriðjud. morgun. Þannig að þetta verður þvílíkur munur.

En jæja þá í þetta sinn....

Knús og kossar....



Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan