Allt að verða vitlaust....

26. apríl 2007 klukkan 20:05

Á síðasta miðvikudag kom ein sjónvarpsstöð í skólann til að taka viðtöl og skoða skólann. Svo í dag fréttist það að það hafi komið maður í klippingu með falda myndavél frá þessari sömu sjónvarpsstöð og ég var að horfa á þennan þátt áðan, einhverskonar danskur Kompás þáttur og sjálf Heidi Sommer eigandi skólans var í þættinum til að svara fyrir sig og sú var sko þokkalega jörðuð þarna á staðnum. Það voru viðtöl við fyrrverandi kennara og nemendur sem létu ekki vel að þessu öllu saman og sérstaklega talað um að fólk væri EKKI að fá fyrir peninginn sinn þarna, hér er linkur af heimasíðu sjónvarpsstöðvarinnar, þar er smá umfjöllun um þetta (þó bara verið að tala um hárgreiðslunámið en snyrtifr. námið er í sömu sporum), ef einhver hefur áhuga á að lesa þetta: http://programmer.tv2.dk/basta/article.php/id-6783864.html

Ég fór á þetta tannhvítunámskeið, en fékk ekki hvítar tennur sjálf, hefði þurft að borga 12000 kr. aukalega ef ég hefði viljað það! En ég hefði nú alveg getað sleppt þessu. Það er verið að rukka okkur um nokkur þúsund fyrir þetta námskeið svo við getum unnið við þetta frítt í skólanum og mér skilst að sá sem hélt þetta námskeið fær ekkert af þessum peningum, hann heldur námskeiðið frítt og gellan heldur peningunum!!!

En það á víst að vera fundur með skólastjóranum einhverntímann næst daga og þá höfum við tækifæri á að setja útá það sem við erum óánægðar með og vonandi verður það til að bæta skólann. En annars er aldrei að vita nema maður skoði þetta vel og alvarlega, hvað maður ætti að gera í þessu.
Jedúdda mía....

Það er nú annars lítið annað að frétta, hlakka mikið til að komast í helgarfrí Glottandi, vera úti og njóta góða veðursins. Það fór allavega í 27° í dag í án þess að sólin skini á mælinn!!!
Á laugardaginn á Binni afmæli en við förum í aðra afmælisveislu, hjá honum Erni okkar, hann er reyndar 2ja ára í dag Brosandi. Þannig að ég slepp við að baka, hehe... fer bara í bakaríið í staðinn og færi honum góðan morgunmat.
Svo voru og Dísa og Freyr að eignast litla prinsessu, til hamingju Dísa og co. Brosandi

Og svo stóð ég við drauminn minn sem kostaði ekki neitt!!! Ég fór út á línuskauta í gærkvöldi Svalur, svakalega dugleg... skautaði á fund hjá ísl.félaginu og fékk svo far til baka Skömmustulegur huhumm...

Jæja best að gera sig klára fyrir Lost... er alveg húkt á þessum blessuðu þáttum... þoli það ekki, þeir eru svo seint á kvöldin og ég vildi gjarnan vera sofnuð þegar þátturinn byrjar, en hugga mig við það að það kemur föstudagur á eftir fimmtudegi... dööö... og svo laugardagur og þá get ég bætt upp svefninn!!!

Allavega.. bless í bili....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Miss Colgate!!!!

24. apríl 2007 klukkan 20:13
Kannski þó í misheppnari kantinum!!
En á morgun er ég að fara að læra að hvíta tennur í skólanum. Mér skilst að við lærum að gera mót eftir tönnunum og setjum svo einhver extra virk efni á þær til að hvíta þær og svo á kúnninn að taka með sér efni til að viðhalda hvítunni eða byggja hana upp... eða bara eitthvað Hlæjandi. En við Jóna höfum engin módel, þannig að við æfum okkur á hvorri annari og við fáum Diploma skjal fyrir þetta og meigum fara að vinna við þetta strax eftir námskeiðið.
Þannig að á fimmtudaginn stend ég í afgreiðslunni með glansandi hvítar tennur, nema kannski neðri hlutann á annarri framtönninni því þar er fylling því hún brotnaði einu sinni og er í sama lit og tennurnar eru núna Óákveðinn.

Í gær var haldinn fundur í skólanum vegna neikvæðra umfjöllunar um einkaskóla í snyrtifr. í Dk. sjónvarpið kom og alles, en við Jóna drifum okkur heim áður en það gerðist. Ég held það verði sýnt á TV2 á fimmtudaginn næsta.  Það var búið að undirbúa okkur undir það hverju við ættum að svara ef við yrðum spurðar að einhverju, við áttum eiginlega að snúa útúr eða láta vel að skólanum!!! Ég hefði bara staðið þarna og roðnað og ropað einhverju stami útúr mér Skömmustulegur, ekki alveg tilbúin í svoleiðis vitleysu.

Af strákunum er allt gott að frétta. Ásbjörn var víst svolítið spéhræddur fyrsta daginn eftir snoðunina Brosandi, neitaði að taka hjólahjálminn af sér þegar hann kom í leikskólann. En hann var fljótur að venjast þessu og kann þessu held ég bara vel, þetta hlýtur allavega að vera þægilegt í hitanum. ´
Þeir bræður eru rosalega duglegir að leika sér úti eftir leikskóla, koma ekki inn fyrr en ég kalla á þá í mat. Og þeir eru eitthvað farnir að leika við krakkana hér úti, þetta er allt að koma hjá þeim. Ég var að hlusta á J.I tala við eina stelpu áðan, hrikalega krúttlegt, danska og smá íslenska í bland en þau skildu hvort annað Brosandi.

Í gærkvöldi var ég svaka dugleg!!! Fór út að línuskauta, alveg dágóðan hring. Gsm síminn minn er með mp3 spilara þannig að ég get hlustað á tónlist á meðan, þvílíkur munur, verð bara að passa mig á að fara ekki að syngja... svo ég fæli nú ekki fuglana og hin dýrin í kringum mig í burtu Skömmustulegur.
Ég nennti svo ekki að skauta í kvöld, fór bara að baka í staðinn og stefni á skautun á morgun. (Kostar ekkert að láta sig dreyma!!!)  En ég verð að fara vera duglegri að hreyfa mig, get ekki látið sjá mig svona á ströndinni í sumar Glottandi.

Og eitt enn... veðurfréttir...það var 21° í dag en engin sól og spáð einhverju álíka á morgun, meira að segja sól!!!  Það er bara tvennt neikvætt við þetta góða veður, það vantar Air condition í sænska eðalvagninn Óákveðinn. Og svo magnast skítafýlan "góða", en ég er allavega búin að læra það að hafa miðstöðina ekki í botni þar sem skítafýlan er mest... það ER gáfulegra að slökkva á henni rétt á meðan maður keyrir í gegn (smá hint... til þeirra sem eru blond eins og sumir!!!).

Jæja nóg af bulli í dag...

Knús og kremjur....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Skallapopparar!!!

22. apríl 2007 klukkan 20:13
jiii... ég var að snoða strákana áðan!!! Þetta er í fyrsta skiptið sem þeir fá að vera snoðaðir og þeir eru bara svoo.. sætir svona Hlæjandi og ekki spillir fyrir að þeir eru orðnir svolítið brúnir Svalur, algjörir töffarar. Binni "fékk nú ekki grænt ljós" frá mér um snoðun þannig að hann lét sig hafa það að vera klipptur mjög stutt. Hann býr sko með Grýlu Hissa. Við vorum sem sagt að koma frá Jónu og Gunna. Jóna hjálpaði mér við að "kantskera" strákana og sjænaði svo Binna og svo var okkur boðið í grill til þeirra, uummm... það var hrikalega gott, það var orðið ansi langt síðan við höfum fengið alvöru grillmat. Ég og Ásbjörn fórum til þeirra á línuskautum, þau búa í hinum enda bæjarins en Ásbjörn er orðinn svo duglegur á skautunum og þetta gekk bara mjög vel. Svo skautaði ég ein heim. Er eitthvað að þykjast vera dugleg Glottandi.


Í gær (laugardag) skruppum við til Þýskalands að versla í matinn. Við höfum aldrei áður verslað svona mikið á einu bretti, en við fylltum heila innkaupakörfu og það hrundi næstum úr henni!!!
Svo var okkur boðið í pönnsur til Árnýjar (já það er ekkert diet þessa dagana Skömmustulegur), meira að segja með rjóma, nammi,namm...  Og til að toppa allt átið á okkur pöntuðum við okkur ekta ítalskar pizzur á Bella Ítalia, bestu pizzur ever.

Í dag fengum við Móniku Rós í heimsókn til okkar, (hún er nokkrum mánuðum yngri en J.I.) Algjör dúlla. En þau voru úti að leika sér í allan heila dag.

Það er ekkert búið að vera alltof hlýtt undanfarna daga en það á eitthvað að hlýna næstu viku. Ég vona að það standist.

Svo er ég byrjuð að vinna á snyrtistofunni í skólanum. Það hefur gengið vel. En djö... var ég stressuð fyrsta daginn. Ég fann alveg stress skjálfta í höndunum á mér annað slagið þegar ég var með fyrsta kúnnann og svo hef ég verið svo stíf í skrokknum að ég fékk þennan dúndrandi hausverk. Ég hef sjaldan fengið svona hrika illt í hausinn og það lagaðist ekkert fyrr en ég kom heim og fékk pillu og lagði mig, næsta dag hef ég verið eitthvað afslappaðri, ég fékk allavega ekkert í hausinn!!!
Ég átti reyndar að gera baknudd annan daginn og gerði allt það sem ég var búin að glósa niður um nuddið, en málið var að ég átti að nudda í 20-30 mín. og var löngu búin að gera það sem stóð á blaðinu áður en tíminn var liðinn, það var enginn kennari nálægt þannig að ég fór bara að bulla eitthvað, kúnninn kvartaði ekkert þannig að þetta hlaut að vera í lagi!!!

En þessi skóli er nú ekkert eins mikið "jahú" eins og hann hljómaði í fyrstu!!!  Við fengum 5 vikur í kennslu og eigum svo að byrja vinna eftir þann tíma. Við höfum fengið að æfa okkur 1x á sumu því sem við þurfum að gera og við höfum ekki fengið kennslu í make-up en samt eigum við að gefa make-up eftir andlitsmeðhöndlun ef kúnninn vill það!!! 
Og... svo ég haldi nú áfram að ausa úr skálunum!!!  Þá eigum við sjálfar að skaffa handklæði til að nota á kúnnana OG þvo þau heima hjá okkur. OG svo er ætlast til þess að við nemendurnir þrífum skólann!!! Já þetta er fáránlegasta rugl ever. Við eigum að þrífa skólastofuna og eldhúsið sem kemur innað henni og ísskápinn þar og baðherbergið!!! Ég held að engin af okkur nýju höfum þrifið í okkar vikum og ég ætla ekki að þrífa þarna, no way... ég er ekki að borga allan þennan pening fyrir að þrífa annarsstaðar en heima hjá mér (og hana nú!!!) Öskrandi
Áður en við byrjuðum að vinna spurði ég annan kennarann hvort þetta með handklæðin væri rétt og spurði svo hvort við gætum þvegið þau í skólanum, hún sagði að við ættum að þrífa þau heima. Þá spurði ég hana fyrir hvað í ósköpunum við værum að borga/í hvað skólagjöldin færu? Þá sagði hún: kennsluna!  Þá spurði Jóna: kennslu í 5 vikur??? þá sagði hún bara já!!!  Þessi kennari svarar svo hratt og stutt og við Jóna erum ekki alveg nógu sleipar í dönskunni til að geta rökrætt og það er svoo.. fúlt. Maður er alltaf kjaftstopp þegar manni langar að ræða málið nánar Fýldur.
Og þessir tveir kennarar sem við höfum útskrifuðust báðar úr þessu sama námi í september síðastliðinn og hafa því þannig séð enga reynslu sjálfar. Önnur þeirra er nú bara 22 ára (þessi sem svara svo hratt og stutt) en hin er 35 ára og maður finnur alveg þroskamuninn á þeim, það er allavega hægt að tala við þessa eldri en samt aldrei gefist tækifæri til að tala um þetta mál við hana.  Bla..bla..bla....
En við erum 4 í bekknum og allavega 3 af okkur ætlum að standa saman og ræða við einhvern sem er yfir þarna um það sem við erum ósáttar við, við eigum eftir að tala við þessa fjórðu, ég trúi ekki öðru en að hún verði með okkur.


Fúfff... ég efast um að einhver skilji þessa rumsu og ef svo er, þá er þetta kannski bara ágætis gestaþraut!!! hehe.. góða skemmtun.

Læt þetta gott heita í bili. Er ekki ritfær lengur nú í augnablikinu, allavega ekki í þessum ham Glottandi.

Veriði hress, ekkert stress, bless, bless....


Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Skítafýla í brælunni!!!

17. apríl 2007 klukkan 19:29

Það er sem sagt eintthvert áburða tímabil hjá bændum þessar VIKURNAR. Jeminn eini, þvílík stibba. Ég keyri 2 klst. á dag (í og úr skóla) og ég er ekkert viðkvæm fyrir fýlu en þessi.... Öskrandi, ég er meira að segja farin að flokka hana!!! Já, ég veit.... ég á mér ekkert líf. Sko... beljufýlan er bara nokkuð góð í samanburði við svína og hænuskítafýluna og prumbufýla er bara tittlingaskítur í samanburði við þetta allt saman. Og ofaná þetta þá er búið að vera mjög heitt og notarlegt undanfarna daga og þá MARGFALDAST fýlan, ég tala nú ekki um þegar bændurnir eru að róta upp skítnum!!! Ég prófaði að anda bara með munninum um daginn og þá fann ég bragðið!!! En þetta hlýtur að fara að verða búið, allavega er gróðurinn að verða ansi flottur.

Ég ætlaði nú ekki bara að tala um skítafýlu en ákvað samt að leyfa ykkur að reyna að upplifa daglega aksturinn með mér Glottandi.

Það var geggjað veður um helgina, en ég fór eiginlega ekkert út. Ég ætla sko ekkert að vera fá einhverja helv... brúnku á mig, má ekki við því... NOT...Hlæjandi. Ég er örugglega hvítasta manneskja í heiminum, fyrir utan albinóa og er alltaf á leiðinni að kaupa mér brúnkuklúta til að fela það Skömmustulegur.  Helgin hjá mér fór í það að læra fyrir próf. Mjög spennandi!!!
En Binni og strákarnir voru mjög aktívir. Á laugardags morgun fóru þeir í sund með Tristani og pabba hans. Svo komu þeir heim og fengu sér SS pylsur og fóru svo heim til einnar konu sem vinnur á leikskólanum hjá strákunum og fengu að skoða íslensku hestana hennar. Þetta var ansi góður rúntur hjá þeim og allir voru hæst ánægðir með daginn. Svo gisti Tristan hjá okkur, þannig að þeir léku sér allan daginn, bæði inni og úti. Og næsta dag drifu þeir sig beint út að leika og hjálpuðu svo Binna við að bóna og þrífa bílinn (ekki veitti af!!! höhömm..). Svo fóru þeir útá bryggju í ísbúðina þar og keyptu sér ís og á meðan æfði ég mig í plokkun og litun og litun á augnhárum, ég held það hafi bara heppnast ágætlega!!!
Í dag fór ég í próf. Bæði bóklegt og verklegt. Við Jóna lærðum svo mikið að það var ekki orðið pláss fyrir meira í hausnum á mér. Ég var farin að rugla öllu saman. En þetta tókst samt. Við náðum allar í bekknum en fengum samt enga einkun, það var reyndar ekki einu sinni setið yfir okkur meðan við vorum í verklega prófinu, bara kíkt inn öðru hvoru!!! Ég hef bara aldrei kynnst öðru eins prófi. Á morgun byrjum við að vinna á snyrtistofunni í skólanum, ó my god, það á eftir að vera eitthvað skrautlegt.

Svo gleymi ég einu!!
Á síðasta föstudag bauð Dagmar mér í heimsókn. Hún og Sólveig ætluðu að fá sér smá hvítvín. Ég skellt mér auðvitað -neita ekki hvítvíni!!! Sólveig var allt kvöldið að dekra við okkur og tók okkur í franskt pedicure (m.ö.o.tók táneglurnar í gegn og setti gel framan á neglurnar og lakkaði) og nuddaði og alles. Ég hef aldrei á ævinni verið með svona flottar tásur og er alltaf að monta mig, berfætt í sandölum Hlæjandi. Svo um eitt leytið stakk Dagmar allt í einu uppá því að við myndum bara skella okkur á skverinn. Ég bara í mínum druslum og næstum ómáluð en það reddaðist, þær lánuðu mér föt og svo fórum við niður til Sólveigar og máluðum okkur og sjænuðum og hringdum á Taxa. Jii... hvað þetta var gaman. Óvæntu fylleríin alltaf skemmtilegust, ekki spurning.  Takk fyrir kvöldið stelpur Glottandi.

Já svona var nú það... fyllerí, skítafýla og lærdómur, mjög spennandi, ekki satt!!!!

Verð að fara að hætta þessu bulli... vinna á morgun Hissa og er með hnút í maganum yfir því.

Bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Gasgríma óskast!!!

09. apríl 2007 klukkan 21:35
Úff... hvað ég og reyndar við öll hér á heimilinu erum búin að éta yfir okkur af súkkulaði og gúmmulaði. Greyið maginn minn, mátti nú ekki alveg við þessu.
En hvað um það. Við erum samt búin að hafa það voðalega huggulegt yfir páskana. Veðrið hefði nú alveg mátt vera betra, það er búið að vera milli 10° og 15° en vindur og hálf rigningarlegt, vantaði alveg sólina. Við létum veðrið samt ekkert stoppa okkur. Á fimmtudaginn fórum við að gefa öndunum brauð en aldrei þessu vant þá voru þær bara ekkert svangar Óákveðinn, þannig að strákarnir voru farnir að narta í fuglabrauðið. (Ég væri nú alveg til í að vera eins og endurnar!!! Þ.e.a.s. að borða ekki þegar ég er södd.) Þegar við vorum orðin þreytt á að kasta brauðmolum í hausinn á "vanþakklátum" öndunum fórum við í kastalann hér í bæ (Sönderborg slot). Þar er safn sem nær aftur til 15 aldar, mjög athyglisvert. Þar var líka í gangi eitthvað fyrir krakka. Þau gátu málað listaverk og þar var listasýning eftir börn. Live tónlist og alles Glottandi.
Á föstudaginn um hádegisbilið datt okkur í hug að drífa okkur í Lególand. Þannig að það var drifið í að smyrja nesti A LA dansk (við erum orðin svo dönsk, með nesti!!) Og svo var brunað af stað. Lególand svíkur engan þannig að það þarf varla að lýsa þeirri ferð Hlæjandi. Nema að við hefðum mátt vera klukkutíma fyrr á ferðinni og veðrið hefði mátt vera betra. Á heimleiðinni fórum við síðan á MC´donalds, mjög hátíðlegt Glottandi. Á laugardaginn fórum við í páskabingó hjá Íslendingafélaginu. Það voru alls konar páskaegg í verðlaun, m.a. Nóa Síríus egg. En við unnum ekkert. Það kom mér svo sem ekkert á óvart því ég vinn ALDREI í neinu, nema þá kannski í Ólsen, ólsen eða þess háttar spilum!!! En maður spilar til að vera með, ekki satt?? (ein að reyna vera jákvæð Hlæjandi). Eftir Bingóið kom Tristan, vinur strákanna í heimsókn. Hann var svo sætur að hann gaf Jóhanni Ingi gamla hlaupahjólið sitt. Þvílík himna sending, ég segi nú ekki annað. Jóhann er búinn að vera á fullu á hlaupahjólinu, gjörsamlega í skýjunum og hann ætlaði sér meira að segja að sofa með það fyrstu nóttina Saklaus, en greyið á svo leiðinlega foreldra....
Strákarnir eru búnir að vera meira en minna úti að leika alla páskana á hlaupahjólum og Ásbjörn er líka búinn að vera að æfa sig á línuskautunum. Hann byrjaði að æfa sig á þeim fyrir þrem dögum síðan og er orðinn svoo.. duglegur.
Á páskadag vorum við eiginlega frekar löt. Ég bakaði reyndar tvær kökur og svo fórum við í smá hjólatúr og komum við á róló.
Í dag fórum við í heimsókn til Tristans, strákarnir náttúrulega úti að skauta og á hlaupahjólum (J.I. alltaf trítlandi á eftir þeim á hlaupahjólinu). Þar fengum við kaffi og þessar fínu rjómatertur umm...
Og á morgun ætlum við Valgerður að taka bæjarrölt og kíkja í búðir.
Og... á miðvikudaginn fer Valgerður svo aftur heim til Íslands Fýldur. Mér kvíður nú bara fyrir því, ég á eftir að sakna hennar svo mikið. Það er svo fínt að hafa hana hérna.

En jæja þá í þetta sinn. Ég ætla rétt að vona að þessi færsla klikki ekki, eins og sú síðasta. Djö.... var ég fúl.

Knús og kremjur.....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Grát-grát...

08. apríl 2007 klukkan 20:05
Ég var búin að skrifa svo mikið... en síðan hvarf það bara, hryllilega svekkjandi. En ég nenni ekki að skrifa allt aftur núna, geymi það þar til á morgun...

Kveðjur...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Hneyksluð!!!

04. apríl 2007 klukkan 21:32

Ég er svo hneyksluð að ég bara verð að koma þessu frá mér!!!
Þannig er mál með vexti að ein stelpa í bekknum mínum er með sjúkdóm. Hún hefur ekki getað unnið í 2 ár vegna þess og hefur lifað á örorkubótum. Bæjarfélagið hennar borgar skólann og stundum er hún svo þreytt í hausnum að hún verður að fara heim úr skólanum og hvíla sig. Við Jóna vorum búnar að reyna finna út hvers konar sjúkdómur þetta væri eftir öllum lýsingunum sem við höfðum fengið um hann og dauðvorkenndum greyið stelpunni, þetta hlyti nú að vera ansi slæmur sjúkdómur. Okkur var sagt að hann héti Damp (sem sagði okkur ekki neitt) svo Jóna fór á netið og komst að því að þetta heitir ofvirkni með athyglisbrest á góðri íslensku. Ég fékk nú bara hálfgert sjokk, því eftir allar serímonurnar í kringum þessa stelpu vegna sjúkdóms hennar.. og komast svo að því að þetta væri Ofvirkni!!! Ég veit nú ekki mikið um þennan sjúkdóm og kannski er ég bara hrikalega heimsk, en... geta ofvirkir virkilega ekki unnið??? Og þarf fólk að tipla á tánum í kringum svona fólk til að skemma ekki rútínu dagsins??  Ég hef ALLS ENGA fordóma gagnvart ofvirkni og er ansi fáfróð um þetta en ég þekki ofvirkt fólk og hef ALDREI litið á það fólk sem sjúklinga eða sem "öðruvísi" fólk.  Reyndar er ég viss um það að þessi stelpa er að drepast úr frekju Öskrandi. Í skólanum í morgun var annar nemandi ekki sammála henni og þá fór hún bara heim!! Og sagði kennaranum að ástæðan væri sjúkdómurinn!! Ég fatta ekki svona. Ég held að það sé bara svona hrikalega auðvelt að misnota danska kerfið og fólk greinilega hikar ekki við það. Ég veit líka að fullt af fólki er á örorkubótum/sjúkradagpeningum vegna stress!!!  Höhömmm... svo er ég að hneykslast Hlæjandi, var sem sagt sjálf á aumingjastyrk í nokkra mánuði Gráðugur... en mér er alveg sama, ég er samt hneyksluð.

Svo er ég meira hneyksluð, já þetta er sko ekkert búið...
Það er sagt að danir séu svo nískir. Ég held það sé bara nokkuð til í því en skal hlífa ykkur við að telja öll dæmin upp, nema eitt sem ég hef upplifað sjálf. Það gleymdi ein stelpa í bekknum nestinu sína heima og það er engin búð í göngufæri við skólann. Það bauð henni ENGIN með sér af nestinu sínu nema ég og Jóna. Sumar voru með fullt af nesti og einhver stakk afgang af nestinu sínu aftur ofaní tösku. Finnst ykkur þetta normal???

Og svo enn eitt hneyksli... nei djók Glottandi. Nú er mér létt Hlæjandi.

Nú er ég bara að bíða eftir að ferðalangarnir týnist í hús. Jóhann Ingi hélt ekki út að bíða, stein sofnaði í sófanum þessi elska.  Við vorum að passa Örn í dag. Þeir voru svo duglegir að leika, ég vissi varla af þeim hérna. Algjörar dúllur Glottandi.

Jæja best að hætta núna og koma sér í móttökustellingar Hlæjandi.

Gleðilega páska og hafið það gott í eggjaátinu Brosandi.

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Þvílík blíða...

01. apríl 2007 klukkan 17:58
Það er búið að vera æðislegt veður um helgina, ekta peysuveður.
En samt eru margir danir ennþá í úlpum og sumir með trefla -ruglað lið!!!  Það vantar ekki köngulærnar í blíðunni og það eru hlussu býflugur á sveimi og eitt kvöldið heyrði ég meira að segja í #%$#!#...mýflugum (moskitoz). En þetta hlýtur bara að þýða það að vorið er komið Brosandi.

Okkur Jóhanni Inga hefur nú ekkert leiðst. Á laugardagsmorgun kl.10 vorum við mætt á bókasafnið í páskaföndur. Alexander og Magga komu með okkur. Þetta var nú frekar flókið föndur fyrir þá þannig að við Magga sáum um þetta og þeir teiknuðu á egg og voru svo bara að leika sér og spila. Eftir föndrið fórum við útí búð og keyptum fötu og skóflu og fórum í sandkassann að leika og um kvöldið fórum við á uppáhaldið hans Jóhanns: Mc´donalds.  Í dag fórum við á smá búðarráp og um miðjan dag fórum við í Katrinalund (pik nik staðinn okkar) með Alexander, Móniku Rós og foreldrum þeirra og grilluðum þar pylsur og krakkarnir léku sér á fullu. Við Jóhann Ingi fórum hjólandi, hann er orðinn svo rosalega duglegur að hjóla og miklu fljótari en hann var fyrir ekki svo löngu síðan. Svo hefur bara verið bað og dúllerí fram að háttatíma Brosandi.

Á aðfaranótt laugardags fékk Jóhann Ingi martröð. Hann kipptist við og vældi og slóg til höndum. Mér var alveg hætt að lítast á þetta og reyndi að tala við hann, en það eina sem ég skildi var að hann benti að glugganum og sagði að einhver vondur væri þar Hissa. Svo hélt hann áfram að láta svona illa og ég var bara orðin hálf hrædd og byrjaði að krossa allt í kringum mig (höhömmm...) og svo ákvað ég að reyna að vekja hann aftur og tókst það og gat talað við hann. Þá hafði hann dreymt að það væri stór maríuhæna að skríða upp hálsinn hans. Það var sem sagt málið og ég þurfti að marg endurtaka að maríuhænur væru bara litlar og þær kæmust ekki inn til okkar því við ættum heima svo hátt uppi, en það var ekkert alveg að virka því hann vissi að þær gætu flogið! En mér tókst að róa hann á endanum og hann sagðist ekkert vera hræddur við maríuhænur. Það sannaðist líka í dag þegar hann tók eina upp og leyfði henni að hlaupa um í höndunum á sér og kramdi hana annað slagið ef hún fór í vitlausa átt Brosandi.  Konurnar á leikskólanum eru mjög duglegar að sýna þeim allskonar skordýr og flugur. En Jóhanni er mjög illa við köngulær og býflugur/geitunga, Ásbjörn er samt eitthvað rólegri yfir þessu.

Ég ætlaði nú að nýta mér kvöldið í að læra eitthvað, það var ekkert alltof auðvelt meðan grísinn var vakandi. Hann var kannski duglegur að leika sér og ég hafði ekki heyrt í honum nokkra stund og ákvað að nota tækifærið á meðan og læra, en þegar ég var rétt sest og stólinn ekki einu sinni orðinn volgur þá heyrðist: MAMMA.....
Þannig að núna ætla ég að drífa þetta af, illu er best af lokið Glottandi.

Bless í bili....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Tvö í kotinu.

30. mars 2007 klukkan 19:15
Já nú erum við Jóhann Ingi bara tvö heima. Ósköp tómlegt hjá okkur. Hann er rosalega duglegur að fara í leikskólann og bara mjög sáttur en spyr samt reglulega um Ásbjörn og pabba sinn. Í dag fékk hann að fara heim með Tristan vini sínum eftir leikskóla því ég hefði ekki náð að sækja hann fyrir lokun og hann var mjög glaður með það. Hann heilsaði mér ekki einu sinni þegar ég kom að sækja hann, heldur sagði hann: ég vil ekki fara heim!!! En við stoppuðum smá stund og ég fékk mér kaffisopa.  Svo var hann alveg búinn á því og sofnaði fyrir kl. 20. Vona bara að hann vakni ekki um kl. 7 í fyrramálið Óákveðinn.

Það er svo hrikalega lítið að frétta að ég er bara galtóm. Síðustu dagar hafa bara gengið útá skóla, borða og sofa.

Ég þykist ætla vera dugleg að læra um helgina, það er skriflegt og verklegt próf eftir 2 vikur Hissa, ég er strax komin með kvíða fyrir því. Og eftir prófin byrjum við að vinna á snyrtistofunni, með kúnnana. Það verður eitthvað skondið!! Því við þurfum að tala við kúnnana og ráðleggja þeim o.þ.h. Ó my god!!!

En ég ætla að hætta að reyna að teygja þetta bull í mér. Skrifa meira á sunnudag ef við finnum okkur eitthvað skemmtilegt að gera um helgina Glottandi.

Knús og kremjur....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

HALLÓ... HALLÓ....

27. mars 2007 klukkan 18:52
        MÓDEL          

               ÓSKAST            

Vegna fjölda tilboða um sjálfboðaliða sem

módel hjá mér þá óska ég hér með eftir

einum til tveimur, allavega svona til að

byrja með.


Smáa letrið:

Málið er að ég þarf að æfa mig í að hreinsa óhreinindi á nefi og höku, m.ö.o. fílapennsla.  Ég prófaði það fyrst í síðustu viku og sú tilraun endaði með því að fórnarlambið mitt var með glóandi rautt nef alla helgina á eftir og pínulítinn marblett.  En æfingin skapar meistarann -ekki satt??  Þannig að nú vantar mig sem sagt sjálfboðaliða.....


FYRSTUR KEMUR...

FYRSTUR FÆR.......

Hlæjandi
  Glottandi  Hlæjandi  Glottandi  Hlæjandi  Glottandi
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan