# Það var Írskt þema í leikskólanum fyrir írsku dagana, krakkarnir máluðu írska fána og þess háttar. Eftir að ég sótti Ásbjörn í leikskólann spurði hann mig: "mamma, hvað er að vera nískur"? (meinti þá Írskur). Ég útskýrði það fyrir honum og tók sem dæmi að við værum íslendingar því við byggjum á Íslandi.  Þá spurði hann:"verðum við þá Danlendingar þegar við flytjum til Danmerkur"??

# Jóhann Ingi: Ég meiddi mig á nebbanum á prumpufílinu!! (trampólíninu).

# Við vorum í dýragarði og sáum þar apa með ógeðslegan og stóran og rauðan rass (næstum stærri en hausinn á þeim).  Allir vildu halda áfram og skoða önnur dýr nema Jóhann Ingi sem varð fúll og sagði: nei ég vil sjá rauðu apana með rassinn!!!

# Við erum búin að vera MJÖG mikið í búðarápi undanfarinn mánuð, strákarnir orðnir frekar þreyttir á því.  Einn daginn vorum við að fara í enn eina búðaferðina og Ásbjörn var engan veginn að nenna að fara með og spurði: " hvað erum við að fara að gera í þessari helvítins búð"!!

# Einn daginn er ég sótti strákana í leikskólann (stuttu eftir að þeir byrjuðu þar) kom Ásbjörn til mín og sagði: Eins gott að þú komst núna!!  Ég spurði hann afhverju, þá sagði hann: Ég þarf svo að kúka!!  Ég spurði hann af hverju hann hafi ekki bara farið á klósettið og kúkað, þá sagði hann: Ég kann ekki að segja það á dönsku!! (algjört krúttBrosandi)

# Ásbirni finnst mjög gaman í tölvunni og við erum eiginlega mjög viljug að leyfa honum það en stundum segjum við þó nei við hann.  Eitt skiptið þegar ég sagði nei við hann þá spurði hann: Af hverju er þetta svona köflótt?  Ég kom alveg af fjöllum og spurði hvað hann meinti.  Þá sagði hann: Stundum má ég fara í tölvuna en stundum ekki!!  (það þýðir semsagt að vera "köflótt"!!!)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan